Íslensku stelpurnar náðu jafntefli á móti bandaríska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2015 19:26 Guðbjörg Gunnarsdóttir í leiknum í kvöld. Vísir/AFP
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta gerði markalaust jafntefli við Bandaríkin í þriðja og síðasta leik sínum í riðlakeppni Algarve-bikarsins í Portúgal í kvöld. Þetta eru frábær úrslit hjá íslensku stelpunum sem hafa aðeins einu sinni áður náð jafntefli á móti bandaríska liðinu og það var fyrir að verða fimmtán árum síðan. Íslensku stelpurnar létu eitt besta kvennalandslið heims finna vel fyrir sér í kvöld og skipulagður varnarleikur íslenska liðsins reyndist bandaríska liðinu óyfirstíganlegur að þessu sinni. Íslenska liðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum á móti Sviss (0-2) og Noregi (0-1) en náði þarna í sín fyrstu stig á mótinu. Bandaríska liðið var miklu meira með boltann eins og búast mátti við en íslenska liðið lokaði svæðinu og varðist aftarlega. Hólmfríður Magnúsdóttir fékk besta færi íslenska liðins undir lok fyrri hálfleiks en Hope Solo varði þá vel frá henni. Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð í markinu og varði nokkrum sinnum mjög vel frá leikmönnum bandaríska liðsins. Íslenska landsliðið hefur þurft að sætta sig við nokkur naum töp á móti bandaríska landsliðinu á Algarve á síðustu árum en að þessu sinni héldu íslensku stelpurnar og náðu að landa stigi á móti einu besta landsliði heims.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Öruggur sigur City Enski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Sjá meira