Fjögur frábær mörk og öruggur sigur Porto-liðsins | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2015 17:10 Það var gaman hjá Porto-mönnum í kvöld. Vísir/AFP
Porto tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld með sannfærandi 4-0 heimasigri á svissneska liðinu Basel. Porto vann samanlagt 5-1 og er komið í átta liða úrslitin í fyrsta sinn síðan 2009. Porto skoraði tvö mörk beint úr aukaspyrnu í leiknum en það var þó ekki sami maðurinn á ferðinni. Yacine Brahimi skoraði fyrra markið og Carlos Casemiro það síðara. Basel endaði leikinn manni færri eftir að Walter Samuel fékk sitt annað gula spjald í uppbótartíma leiksins. Fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli eftir að Porto-menn jöfnuðu ellefu mínútum fyrir leikslok. Portúgalinn Paulo Sousa er þjálfari Basel, gerði sér vonir um að slá út landa sína í kvöld en hann þurfti að yfirgefa heimalandið með skottið á milli lappanna. Yacine Brahimi skoraði fyrsta mark Porto beint úr aukaspyrnu á 14. mínútu og lagði síðan upp annað markið fyrir Héctor Herrera eftir aðeins tveggja mínútna leik í seinni hálfleik. Carlos Casemiro gerði endanlega út um leikinn þegar hann skoraði þriðja markið beint úr aukaspyrnu á 56. mínútu. Porto-menn voru ekki hætti og Vincent Aboubakar skoraði glæsilegt mark á 76. mínútu leiksins. Það er hægt að sjá öll þessu fjögur glæsilegu mörk hér fyrir neðan.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Bein útsending: Dregið í riðla á HM í Þýskalandi Handbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Fleiri fréttir Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Benfica staðfestir að Mourinho taki við Real Madrid „Þessi leikur er gleymdur og grafinn“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Linda kom með smá líf í seinni Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Stelpurnar hennar Betu unnu stórt en ekki nógu stórt Atlético hafnaði risatilboði Real Madrid Tvær koma inn fyrir leikinn á móti heimsmeisturunum Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ „Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Sjá meira