Handbært fé ríkissjóðs tekur dýfu vegna skuldalækkunarinnar Aðalsteinn Kjartansson skrifar 1. apríl 2015 13:38 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynntu leiðréttinguna, sem nú hefur haft mikil áhrif á handbært fé ríkissjóðs. Vísir/Valli
Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs í janúar versnaði verulega miðað við sama mánuð á síðasta ári. Var það neikvætt um 51 milljarð króna, samanborið við 10,4 milljarða í janúar 2014. Þetta skýrist að stærstum hluta með útgreiðslum vegna skuldaniðurfærslu ríkisstjórnarinnar, samkvæmt tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þar kemur fram að útgreiðslan hafi verið gjaldfærð í lok 2014 en hafi komið til greiðslu í janúar. Á sama tíma lækkuðu innheimtar tekjur um 8,8 milljarða á milli ára en gjöldin jukust um 364 milljónir króna. Skatttekjur og tryggingargjöld sem ríkið innheimti í janúar voru 15,8 prósent undir tekjuáætlun fjárlaga, eða 32 milljarðar króna. Það er samdráttur upp á 17,3 prósent á milli áranna 2014 og 2015. Skattar á tekjur og hagnað námu 13,5 milljörðum sem er samdráttur um 33 prósent frá því í fyrra. Það er töluvert undir áætlun mánaðarins. Í tilkynningunni er gerður fyrirvari við að „uppgjör janúarmánaðar felur yfirleitt ekki í sér miklar vísbendingar um hvernig árið í heild gæti átt eftir að standast áætlun fjárlaga“.
Alþingi Mest lesið Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Innlent Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Innlent PAP vann stórsigur í Singapúr Erlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Erlent Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Erlent „Vona að þú sofir vel“ Innlent Birti mynd af sér í páfaskrúða Erlent Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Innlent Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Innlent Fleiri fréttir Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Nágrannaerjur, grjótkast og „víðáttuölvuðum“ veitt eftirför Nýtt 44 herbergja hjúkrunarheimili byggt í Hveragerði „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Öskrandi reiður í vandræðum með að leigja rafskútu Glussakerfið ónýtt eftir brunann Hefur áhyggjur af arftaka sínum Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Umtöluð frelsissvipting og stórslösuð sjónvarpsstjarna Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ „Vona að þú sofir vel“ Eldur í ruslabíl vestur í bæ Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Mannréttindadómstóllinn blandar sér í Vatnsendamálið „Mér finnst þetta ómöguleg framkoma“ Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Óljóst hvers vegna ferðamanni var haldið í gíslingu Borgarstjóri sé brennuvargur en Framsókn í slökkviliðinu „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Sjá meira