ISIS stjórnar helmingi Sýrlands Samúel Karl Ólason skrifar 22. maí 2015 11:30 Sýrlenski herinn hefur þurft að hörfa undan Íslamska ríkinu á síðustu dögum. Vísir/EPA
Vígamenn Íslamska ríkisins ráða nú yfir helmingi Sýrlands og öllum landamærastöðvum á milli Sýrlands og Írak. Samtökin hafa sótt hart fram síðustu daga og hertekið borgir og bæi í báðum löndum. Yfirvöld í Bandaríkjunum segja að erfitt verði að ráða niðurlögum ISIS. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir þó að þeir séu ekki að tapa stríðinu gegn ISIS. Á vef BBC er haft eftir talsmanni Hvíta hússins að þangað til þjálfun uppreisnarhópa í Sýrlandi og vopnvæðingu þeirra er lokið, verði baráttan erfið. Uppreisnarhópar hliðhollir Bandaríkjunum gætu þó barist við ISIS á þeirra heimavelli.Í morgun birtust fréttir af því að hermenn hafi yfirgefið sjúkrahús í Norðvestur-Sýrlandi, þar sem þeir hafa verið umkringdir í nærri því mánuð. Samkvæmt AP fréttaveitunni segja bæði þarlendir fjölmiðlar og hjálparstarfsmenn að hermennirnir hafi haldið á líkum félaga sinna og þeim sem voru særðir. Fyrr í mánuðinum hét forseti Sýrlands, Bashar Assad, því að bjarga „hetjunum í Jisr al-Shughour spítalanum“. Tugir hermanna komust undan í skjóli loftárása og stórskotaliðs en uppreisnarhópur tengdur al-Qaeda stjórnar nú spítalanum.
Mið-Austurlönd Mest lesið Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Innlent Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Innlent Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Veður Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Innlent Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Erlent Undirbúa árásir á Húta og hernám Gasa Erlent Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Innlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent Fleiri fréttir Undirbúa árásir á Húta og hernám Gasa Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Íbúar Nuuk orðnir tuttugu þúsund Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Umsetin af krókódílum í 36 klukkutíma eftir nauðlendingu Birti mynd af sér í páfaskrúða Sögulegur sigur Umbótaflokks og skipbrot stóru flokkanna tveggja Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Brand fær að ganga laus á meðan réttað er yfir honum Flokka Valkost fyrir Þýskaland sem öfgasamtök Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Drengnum sleppt en fleiri handteknir Munaði sex atkvæðum Waltz bolað úr embætti af Trump vegna Signal skilaboðanna Var svo „þreyttur á öllu“ að hann ákvað að aka inn í þvögu barna Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sjá meira