Óþekktur Svíi efstur á Memorial Kári Örn Hinriksson skrifar 6. júní 2015 14:15 Jason Dufner. Getty
Svíinn David Lingmerith leiðir þegar að Memorial mótið er hálfnað en eftir tvo hringi á Muirfield vellinum er hann á 12 höggum undir pari. Fyrrum PGA-meistarinn Jason Dufner virðist vera að finna sitt gamla form aftur en hann er í öðru sæti á 11 höggum undir pari. Dufner átti einnig tilþrif gærdagsins en hann fór holu í höggi á 16. holu sem er 180 metrar að lengd. Aðstæður voru fullkomnar til þess að skora vel á öðrum hring og það sást en margir sterkir kylfingar eru toppbaráttunni, meðal annars næst besti kylfingur heims, Jordan Spieth, sem er á sex höggum undir pari.Tiger Woods er meðal þátttakenda um helgina en hann rétt náði niðurskurðinum og er á einu höggi undir pari eftir hringina tvo. Hann þarf því að leika vel í dag til þess að blanda sér í baráttu efstu manna en bein útsending frá þriðja hring hefst á Golfstöðinni klukkan 16:30 í dag.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira