Birgir Leifur í 5.-9. sæti á Spáni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júlí 2015 15:49 Birgir Leifur spilaði vel á Spáni. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 5.–9. sæti á Áskorendamótinu sem fram fór á Kanaríeyjum á Spáni. Hann lék lokahringinn á fjórum höggum undir pari en samtals lék hann á 15 höggum undir pari. Birgir lék vel á Spáni. Hann tapaði aðeins fjórum höggum á 72 holum en hann fékk alls 19 fugla á hringjunu fjórum. Sigurvegarinn Rhys Davies var á -22 samtals en þetta er annar sigur hans á mótaröðinni. Þetta er besti árangur Birgis á tímabilinu á Áskorendamótaröðinni. Hann hafði áður náð 8. sæti en þetta var fimmta mótið hjá Birgi á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni. Með árangri sínum tryggði Birgir sér keppnisrétt á næsta móti sem fram fer í Frakklandi í næstu viku. Ekki er enn vitað hvort Birgir ætlar að leika á mótinu í Frakklandi eða reyna að verja Íslandsmeistaratitilinn á Garðavelli á Akranesi í næstu viku.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira