Michael Jordan þénar nú meira á hverju ári en hann gerði allan NBA-feril sinn Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. september 2015 19:09 Allt sem Jordan snertir verður að gulli
Ótrúlegur íþróttaferill Michael Jordan og árangur hans í viðskiptalífinu eftir að ferlinum lauk hafa gert það að verkum að Jordan er á lista Forbes yfir ríkustu einstaklinga heimsins.Hann þénar nú hærri upphæðir á hverju ári en hann gerði allan NBA-feril sinn. Rúmlega áratug eftir að Jordan lagði körfuboltaskóna á hillunna er hann enn einn af launahæstu íþróttamönnum heimsins í dag. Fær hann um 100 milljónir dollara á ári vegna samninga sinna við Nike vegna Jordan-vörumerkisins sem framleiðir m.a. hina vel þekktu Air Jordan körfuboltaskó. Enginn íþróttamaður í heiminum í dag fær jafnháar upphæðir fyrir auglýsinga- eða styrktarsamninga og meðal íþróttamanna eru aðeins hnefaleikakapparnir Floyd Mayweather Jr. og Manny Pacquaio launahærri. Á öllum NBA-ferli sínum þénaði Jordan um 90 milljónir dollara í laun sem þýðir einfaldlega að í dag þénar Jordan hærri upphæðir á hverju ári en hann gerði allan NBA-feril sinn.
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira