Garðar manna mikilvægastur á Skaganum Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. október 2015 08:00 Garðar Gunnlaugsson. vísir/andri marinó
Garðar Gunnlaugsson, framherji ÍA, nældi sér í bronsskóinn á lokadegi Pepsi-deildarinnar með því að skora eitt mark í 2-1 sigri Skagamanna gegn ÍBV. Garðar skoraði í heildina níu mörk í 17 leikjum og hirti bronsskóinn af Steven Lennon, FH, á færri leikjum spiluðum. Garðar hefur tvisvar áður þurfti að sætta sig við fjórða sætið en fékk um helgina sinn fyrsta markaskó. Þetta er jafnframt fyrsti markaskórinn sem Skagamenn fá síðan Hjörtur Hjartarson varð markakóngur deildarinnar Íslandsmeistaraárið 2001. Skagamenn gerðu vel í ár og enduðu mótið með 29 stig sem nýliðar. Takmarki þeirra var náð að halda sér í deildinni en liðið sýndi mikinn karakter allt mótið og var til að mynda það lið sem vann flest stigin eftir að lenda undir. Það er á engan hallað í Skagaliðinu þegar fullyrt er að Garðar Gunnlaugsson er mikilvægasti leikmaður liðsins. Væri kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar væri hann í harðri baráttu um þann titil. Garðar var mikið meiddur í fyrri umferðinni og skoraði þar tvö mörk sem í heildina tryggðu liðinu fjögur stig. Sigurmark gegn Leikni og jöfnunarmark gegn Víkingi. Hann skoraði svo sjö mörk í seinni umferðinni og halaði inn fimm stigum til viðbótar upp á sitt einsdæmi með jöfnunarmörkum gegn Stjörnunni, Víkingi aftur og Fjölni. Í heildina tryggði Garðar Skagamönnum sjö stig af 29 eða tæpan fjórðung. Garðar skoraði í átta leikjum og þar af aðeins einum tapleik. Nánast öll mörkin voru mikilvæg og áttu þátt í að safna stigum fyrir Skagaliðið. Það sést líka á stigasöfnun ÍA með og án Garðars hversu mikilvægur hann er. ÍA fékk fimm stig í fimm leikjum án hans en 24 stig í 17 leikjum með hann í liðinu. Það er kannski eins gott fyrir Skagamenn að Garðar er samningsbundinn út næsta tímabil.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Handbolti „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Fleiri fréttir Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Sjá meira