Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Sindri Sverrisson skrifar 13. mars 2026 11:30 Ögmundur Kristinsson byrjaði leik Vals en var ekki í byrjunarliði á leikskýrslu, og FH-ingar hættu eftir fyrri hálfleik gegn Fylki í snjóleik í Árbænum. Samsett FH-ingar hlutu 250 þúsund króna sekt fyrir þá ákvörðun sína að yfirgefa Árbæinn eftir fyrri hálfleik gegn Fylki, í erfiðum vetraraðstæðum í Lengjubikar karla í fótbolta á dögunum. Valsmenn hafa einnig hlotið sekt, fyrir ranglega útfyllta leikskýrslu.
FH hlaut því lágmarkssekt samkvæmt reglum KSÍ um það þegar lið yfirgefa leikvöll og neita að klára leik. Heimilt er að refsa liðum með sekt frá 250-500 þúsundum, brottrekstri úr keppni, stigatapi og leikbanni. Dómari leiks FH og Fylkis stöðvaði leikinn á 33. mínútu, vegna snjókomu, þegar jafnframt var orðið erfitt að greina línur á vellinum. Hann ákvað svo að fyrri hálfleikur yrði kláraður og staðan metin í hálfleik. Í hálfleikshléinu var svo völlurinn mokaður og hléið lengt þar til að því verki var lokið en þá höfðu FH-ingar fengið nóg og ákveðið að yfirgefa svæðið. Fylkir var 1-0 yfir á þessum tímapunkti og var svo dæmdur 3-0 sigur. Í úrskurðinum um sekt FH er haft eftir dómara að ekki hafi verið frost í vellinum. Þessu hafna FH-ingar og segja óskiljanlegt að leiknum hafi ekki verið frestað, eins og félagið hafði óskað eftir vegna slæmrar veðurspár. „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður að mínu mati sem hefðu getað haft alvarlegar afleiðingar fyrir leikmenn,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, við Vísi. Valsmenn fengu svo 100 þúsund króna sekt, eða lágmarkssekt, fyrir að skila inn ranglega útfylltri leikskýrslu fyrir leik gegn ÍA 26. febrúar. Valsmenn höfðu sett markvörðinn Stefán Þór Ágústsson í byrjunarliðið á leikskýrslu en þegar á hólminn var komið voru þeir með Ögmund Kristinsson í markinu. Valsmenn neituðu að breyta þessu þrátt fyrir staðfesta leikskýrslu og hlutu því fyrrgreinda sekt. Málsvörn Vals byggði á því að um mistök hefði verið að ræða sem uppgötvuðust rétt fyrir leik, og tók aga- og úrskurðarnefnd fram að ekki væri talið að skýrslan hefði vísvitandi verið ranglega útfyllt.
Lengjubikar karla Valur FH Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira