Eyjakonur áfram með fullt hús stiga | Stefanía frábær í öruggum sigri Stjörnunnar Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. október 2015 20:30 Stjarnan hefur byrjað tímabilið af krafti. Vísir/anton
Stefanía Theodórsdóttir fór á kostum í öruggum 31-17 sigri Stjörnunnar á HK í 5. umferð Olís-deildar kvenna í kvöld. Stjörnukonur gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 16-7, Stjörnunni í hag. Bættu þær við forskot sitt eftir því sem leið á seinni hálfleik og unnu þær að lokum öruggan sigur. Stefanía var atkvæðamest í liði Stjörnunnar með átta mörk en Arna Dýrfjörð bætti við fimm mörkum. Í liði gestanna var Emma Havin Sardarsdóttir markahæst með fimm mörk en Kolbrún Arna Garðarsdóttir og Þórhildur Braga Þórðardóttir bættu við þremur mörkum hvor. Eyjakonur eru áfram með fullt hús stiga eftir öruggan sigur á FH í Kaplakrika en ÍBV leiddi með tíu mörkum í hálfleik. ÍBV náði forskotinu strax í upphafi og leiddi 17-7 í hálfleik. Eyjakonur hleyptu FH-ingum aldrei nálægt sér í seinni hálfleik og unnu að lokum öruggan 10 marka sigur, 31-21. Heiðdís Rún Guðmundsdóttir var atkvæðamest í liði FH með níu mörk en í liði ÍBV voru það Vera Lopes með átta mörk og Telma Amado með sjö. Þá unnu Valskonur annan leik sinn í röð í 27-16 sigri á KA/Þór á Akureyri í kvöld. Valskonur leiddu með sjö mörkum í hálfleik í stöðunni 7-14 og unnu að lokum öruggan sigur. Var þetta annar sigur Valskvenna í röð eftir tap gegn Stjörnunni í þriðju umferð en Þór/KA hefur nú tapað fjórum leikjum í röð eftir að hafa náð jafntefli gegn FH í fyrstu umferð. Kristín Guðmundsdóttir var markahæst í liði Vals með sex mörk en Sigurlaug Rúnarsdóttir bætti við fimm mörkum. Í liði Norðankvenna var það Anna Kristín Einarsdóttir sem var atkvæðamest með fimm mörk en Birta Fönn Sveinsdóttir bætti við fjórum mörkum fyrir Þór/KA.
Olís-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira