EM kvenna á Urriðavelli 3. nóvember 2015 18:00 Frá Urriðavelli. vísir/daníel
Evrópumót kvennalandsliða í golfi verður haldið á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ sumarið 2016. Þetta verður stærsta alþjóðlega golfmót sem haldið hefur verið á Íslandi til þessa. Í mótinu munu keppa fremstu áhugakylfingar kvenna í Evrópu ásamt okkar bestu konum. Búast má við um 120 keppendum frá um 20 þjóðlöndum ásamt fylgdarliði. Golfsamband Íslands og Golfklúbburinn Oddur hafa nú þegar hafið undirbúning mótsins. Frakkar báru sigur úr býtum í mótinu á síðasta ári, annað árið í röð. „Það er ljóst að þetta er mikil viðurkenning fyrir íslenskt golf og það öfluga starf sem unnið hefur verið á Íslandi. Einnig er þetta mikil viðurkenning fyrir Urriðavöll sem hefur þótt einn jafnbesti völlur landsins undanfarin ár af öðrum völlum ólöstuðum,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Odds. Mótið fer fram 4.–9. júlí á næsta ári sem verður til þess að Meistaramót GO verður viku síðar á ferðinni en undanfarin ár. Verkefnið er eitt það stærsta sem Golfklúbburinn Oddur hefur tekið að sér og er ljóst að þörf er á hjálp frá félagsmönnum GO við framkvæmd mótsins. Vonast er til að félagsmenn taki mótinu opnum örmum og bjóði fram aðstoð sína við framkvæmdina. Það er við hæfi að Evrópumót kvennalandsliða skuli haldið á Urriðavelli þar sem hæsta hlutfall kvenna í golfklúbbi á Íslandi er í Golfklúbbnum Oddi eða 42 prósent á meðan að landsmeðaltal er 29 prósent.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira