Birgir Leifur í vondum málum á Spáni Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. nóvember 2015 14:35 Birgir Leifur þarf að eiga frábæran hring á morgun til að komast áfram. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék á einu höggi yfir pari á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í dag. Birgir Leifur er samtals á fimm höggum yfir pari eftir þrjá hringi, en hann spilaði fyrsta hringinn á 74 höggum, annan hringinn á 72 höggum og svo hringinn í dag á 73 höggum. Keppni er ekki lokið í dag, en hann er sem stendur í 118. sæti af 156 kylfingum. Fjórði hringurinn verður spilaður á morgun en eftir hann verður skorið niður. Aðeins 70 kylfingar komast áfram og spila úrslitahringina tvo. Birgir Leifur þarf að fara á kostum á morgun, en hann er um sex höggum frá því að vera á meðal 70 efstu. Takist Birgi Leif það verður hann svo að vera á meðal 25 efstu til að fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð heims.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira