Bjuggu til vekjaraklukku sem neyðir þig fram úr rúminu - Myndband Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. janúar 2016 22:25 Græjan minnir helst á afkvæmi heilsukodda og baðvigtar.
Glímirðu oft á tíðum við það leiða vandamál að eiga erfitt með að fara fram úr rúminu á morgnanna? Teygir þú þig of oft í vekjaraklukkuna til þess eins að ýta á „snooze“ takkann? Þá gæti frumkvöðlafyrirtæki í Kanada verið með lausnina fyrir þig. Lausnin minnir helst á baðvog en er í raun vekjaraklukka sem hættir ekki að pípa fyrr en þú hefur staðið á henni í nægilega langan tíma. Ekki nóg með það heldur bíður hún líka upp á þann möguleika að hægt sé að setja hljóðbrot að eigin vali til að spilast um leið og slökkt er á henni. Hver og einn notandi getur þannig sett ræður eða lög til að koma sér í gang um morguninn. Hægt er að styðja framleiðendurna inn á vefsíðunni Kickstarter en þar benda þeir m.a. á að meðalmanneskjan sefur í um 26 ár af lífi sínu. Með því að sleppa fimm mínútna „snooze-i“ á degi hverjum er mögulegt að fjölga vökustundum um allt að hundrað daga. Myndband af græjunni og hvernig hún virkar má sjá hér að neðan.
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira