Tveir efstir á Torrey Pines eftir fyrsta hring 29. janúar 2016 09:15 Mickelson dundar sér á fyrsta hring í gær. vísir/getty
Bandaríkjamennirnir Scott Brown og Andrew Loupe leiða eftir fyrsta hring á Farmers Insurance mótinu sem fram fer á Torrey Pines. Leikið er á tveimur völlum, norður og suður en suðurvöllurinn reyndist þeim kylfingum sem hann léku töluvert erfiðari í gær. Margir deila þriðja sætinu á fimm höggum undir pari og enn fleiri eru á fjórum undir en frammistaða Phil Mickelson, sem hefur leikið illa að undanförnu, vakti verðskuldaða athygli . Mickelson fékk tvöfaldan skolla á aðra holu en fékk síðan sex fugla það sem eftir var af hringnum og endaði á 69 höggum, þremur undir, en hann er í miklu uppáhaldi hjá áhorfendum á PGA-mótaröðinni. Rickie Fowler sem sigraði á Abu Dhabi meistaramótinu um síðustu helgi byrjaði illa og er á einu höggi yfir pari, sjö á eftir efstu mönnum. Þá átti Jason Day, sem á titil að verja um helgina, í erfileikum á fyrsta hring en hann hefur verið með flensu undanfarna daga og lék ekki æfingahring fyrir mótið. Day barðist þó í gegn um hringinn og endaði á sléttu pari en hann er jafn í 76. sæti um miðjan hóp. Bæði Farmers Insurance mótið og Qatar Masters, sem fram fer á Evrópumótaröðinni, eru í beinni útsendingu á Golfstöðinni alla helgina en útsendingartíma má nálgast hér.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira