Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Grótta 24-24 | Sanngjörn niðurstaða í Mosfellsbænum Ingvi Þór Sæmundsson í N1-höllinni skrifar 18. febrúar 2016 21:45 Mikk Pinnonen skoraði sex mörk í kvöld. vísir/stefán
Afturelding og Grótta skildu jöfn, 24-24, í 21. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Stigið skilar Aftureldingu upp fyrir Fram í 3. sæti deildarinnar en Grótta er í því sjötta. Það munar þó aðeins einu stigi á liðunum. Fyrri hálfleikur var gríðarlega jafn en aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum. Bæði lið spiluðu sterka vörn og markverðirnir voru vel með á nótunum, og þá sérstaklega Lárus Helgi Ólafsson í marki Gróttu en hann varði 10 skot í fyrri hálfleik (48%). Sóknarleikur beggja liða var mjög slakur framan af fyrri hálfleik. Vörn Aftureldingar var öflug en Mosfellingar voru oft á tíðum klaufar þegar þeir köstuðu boltanum strax frá sér eftir að hafa staðið góða vörn. Gróttuvörnin var sömuleiðis sterk enda skoraði Afturelding aðeins þrjú mörk á fyrstu 16 mínútum leiksins. Mikk Pinnonen átti ekki jafn góðan leik og gegn Fram í síðustu umferð en var samt duglegur að spila samherja sína í góð færi sem þeir nýttu ekki. Lárus var mjög góður í markinu og tók nokkur dauðafæri. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn fóru svo að opnast fleiri göt í vörnum liðanna. Afturelding breytti stöðunni úr 3-5 í 9-7 en sóknarleikur Mosfellinga batnaði mikið við innkomu Jóhanns Gunnars Einarssonar. Grótta gat hins vegar þakkað Finni Inga Stefánssyni fyrir að staðan var jöfn í hálfleik, 11-11, en hann skoraði þrjú af síðustu fjórum mörkum gestanna í fyrri hálfleik og lagði hitt upp. Seinni hálfleikurinn var mun sveiflukenndari en sá fyrri. Gróttumenn byrjuðu hann mun betur og skoruðu fyrstu þrjú mörkin. Mosfellingar voru lengi í gang í sókninni og líkt og í fyrri hálfleik tapaði liðið boltanum alltof oft. Afturelding jafnaði metin í 16-16 en þá kom frábær 4-0 kafli hjá Gróttu. Þrjú þessara marka komu eftir hraðaupphlaup en heimamenn voru sem fyrr full duglegir að deila boltanum með gestunum. Í stöðunni 16-20, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka, fékk Þráinn Orri Jónsson, varnarjaxl Gróttu, tveggja mínútna brottvísun. Það kom Mosfellingum á bragðið en þeir skoruðu sjö mörk gegn einu og náðu tveggja marka forystu, 23-21, þegar Pinnonen skoraði sitt fimmta mark í leiknum. Grótta var í tómu basli í sókninni á þessum kafla og skoraði ekki mark í um níu mínútur. Viggó Kristjánsson hjó loks á hnútinn þegar hann minnkaði muninn í 23-22 og í kjölfarið fengu heimamenn tveggja mínútna brottvísun fyrir vitlausa innáskiptingu. Guðni Ingvarsson jafnaði metin í 23-23 en Pinnonen kom Aftureldingu yfir á ný með frábæru skoti. Seltirningar voru þó fljótir að svara þegar Árni Benedikt Árnason jafnaði metin í 24-24 með sínu fyrsta og eina marki í leiknum. Bæði lið fengu tækifæri til að tryggja sér sigurinn en varð ekki ágengt. Lokatölur því 24-24 í hörkuleik. Árni Bragi Eyjólfsson fylgdi eftir frábærum leik gegn Fram í síðustu umferð og var markahæstur í liði Aftureldingar með sjö mörk. Pinnonen kom næstur með sex mörk en hann átti auk þess slatta af stoðsendingum. Hinum megin voru Guðni og Viggó markahæstir með fimm mörk hvor. Finnur Ingi og Aron Dagur Pálsson skoruðu báðir fjögur mörk í fyrri hálfleik en létu minna fyrir sér fara í þeim seinni.Jóhann Gunnar: Hver tapaður bolti er dýr Jóhann Gunnar Einarsson, leikmaður Aftureldingar, var á báðum áttum hvort hann ætti að vera sáttur eða ósáttur með stigið sem Mosfellingar fengu gegn Gróttu í kvöld. "Ég er drullufúll en þeir áttu síðasta skotið þannig að verður maður ekki að taka þessu," sagði Jóhann Gunnar en Mosfellingar leiddu með tveimur mörkum, 23-21, þegar fimm mínútur voru eftir. "Það var klaufaskapur hjá okkur þegar við gerðum vitlausa skiptingu, þótt það hafi kannski ekki gert útslagið. "Þetta var sveiflukenndur leikur. Þeir skoruðu mikið úr hraðaupphlaupum eftir að við köstuðum boltanum frá okkur. En svo tókum við leikhlé, róuðum okkur og lögðum áherslu á að enda sóknirnar með skoti. Það er svo mikilvægt. "Þessi deild snýst dálítið um það að tapa boltanum ekki. Þú mátt ekkert við því, það er ekki það mikið skorað. Hver tapaður bolti er dýr." Jóhann Gunnar segist allur vera að koma til eftir meiðsli þótt það vanti enn talsvert upp á leikformið. "Líkamlega er ég að komast í gott stand en leikformið vantar. Birkir (Benediktsson) er búinn að spila þvílíkt vel og nú er ég bara í því hlutverki að hvíla hann, koma inn á og hjálpa til. Svo sjáum við hvernig þetta verður," sagði Jóhann Gunnar að lokum.Gunnar: Finnst hann alltaf vera á fjórða, fimmta skrefinu Gunnar Andrésson, þjálfari Gróttu, var bærilega sáttur með eitt stig úr leiknum gegn Aftureldingu í kvöld. "Jájá, mér finnst við samt vera með ansi góð spil á hendi þegar 12-13 mínútur voru eftir, fjórum mörkum yfir og vorum einhvern veginn með þá," sagði Gunnar eftir leik. "En við áttum í erfiðleikum á kafla í sókninni undir lokin og það vantaði kannski aðeins meira framlag frá 1-2 leikmönnum hjá mér í dag svo við gætum klárað leikinn. "Sóknin var ekkert sérstök en vörnin var góð og Lárus (Helgi Ólafsson) mjög góður í markinu. Af þessum 11 mörkum sem þeir skoruðu í fyrri hálfleik komu 10 af línu eða úr horni þannig að við fengum ekki á okkur mörk utan af velli." Mikk Pinnonen, eistneski leikstjórnandinn í liði Aftureldingar, átti fínan leik í kvöld og skoraði sex mörk. Gróttumenn kvörtuðu þó mikið yfir því að hann tæki of mörg skref þegar hann færi í árásir á vörnina. Frammarar kvörtuðu einnig yfir því sama í leiknum gegn Aftureldingu fyrir viku. "Mér finnst þetta á mjög gráu svæði. Þetta er eitthvað nýtt fyrir dómarana og ég held að menn þurfi aðeins að skoða þetta. Mér finnst hann alltaf vera í fjórða, fimmta skrefinu. En það réði ekki úrslitum," sagði Gunnar sem fer nú að undirbúa sína menn undir leikinn gegn Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppninnar á föstudaginn eftir viku. "Við höfum lítið verið að spá og spekúlera varðandi bikarinn. Nú fer sú vinna bara á fullt í kvöld og á morgun og það er rosalega skemmtileg vika framundan sem við ætlum að búa okkur vel undir," sagði Gunnar að endingu.
Olís-deild karla Mest lesið Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Fótbolti Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Körfubolti Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Körfubolti Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Enski boltinn „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Íslenski boltinn Þriðji sigur Liverpool í röð Enski boltinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Enski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti