Landsmenn hvattir til að njóta helgarinnar því útlit er fyrir talsverða umhleypinga eftir helgi Birgir Olgeirsson skrifar 12. febrúar 2016 11:02 Búist er við djúpri lægð á mánudag en fallegu veðri yfir helgina sem landsmenn eru hvattir til að njóta. Vísir/Vilhelm
Það verður fallegt veður yfir helgina en veðurfræðingur hjá Veðurstofa Íslands hvetur landsmenn til að njóta veðursins yfir helgina því eftir hana er útlit fyrir talsverða umhleypinga. Í hugleiðingum Veðurfræðings, sem er að finna á vef Veðurstofu Íslands, kemur fram að í dag muni draga smám saman úr úrkomunni á austanverðu landi, en þó stinga sér niður él víða um landið, einkum við suður- og suðausturströndina í kvöld. Vindáttin verður norðaustlæg, hvassast verður við norðurströndina, 8 – 13 metrar á sekúndu. Á morgun er svipað veður í kortunum en það heldur áfram að kólna og á sunnudag er útlit fyrir vetrarstillur og talsvert frost um allt land. Eftir helgina er útlit fyrir talsverðar umhleypingar, og strax á mánudag gengur nokkuð djúp lægð upp að landinu með hlýindum og talsverðri úrkomu. Það er því um að gera að njóta helgarinnar.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á sunnudag:Fremur hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en líkur á stöku éljum úti við sjóinn. Talsvert frost.Á mánudag:Ört vaxandi suðaustanátt með slyddu síðdegis en sunnan 15-25 m/s og rigning V-til um kvöldið. Suðaustan 8-13 m/s of úrkomulítið NA-til fram á kvöld. Hlýnandi veður, víða frostlaust um kvöldið.Á þriðjudag:Útlit fyrir suðlæga átt og talsverða rigningu eða snjókomu A-til á landinu en gengur í norðvestan hvassviðri og snjókomu V-til síðdegis en einnig A-til um kvöldið. Kólnar í veðri, frost um allt land undir kvöld.Á miðvikudag:Vestlæg átt, 5-10 m/s og stöku él en snjókoma með norðurströndinni. Frost 0 til 8 stig.Á fimmtudag:Breytileg átt, 3-10. Snjómugga á sunnanverðu landinu en annars úrkomulítið. Frost 2 til 10 stig.Á föstudag:SA-læg átt, 5-13. Snjókoma eða slydda sunnan- og vestanlands. Frostlaust með suðurströndinni en annars allt að 12 stiga frost.
Veður Mest lesið Halldór Blöndal er látinn Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Innlent Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Innlent Fleiri fréttir Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Sjá meira