Þota Emirates hóf flug á lengstu núverandi áætlunarleið flugfélags Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2016 09:44 Airbus A380 .ota Eirbus lenti í Auckland í gær eftir að hafa tekið á loft í Dubai. Vísir/AFP
Airbus A380 þota flugfélagsins Emirates hefur farið í það sem talin er vera lengsta núverandi áætlunarleið flugfélags í kílómetrum talið. Vélin flaug um 14.200 kílómetra á leið sinni frá Dubai til Auckland á Nýja-Sjálandi í gær. Í frétt BBC segir að fyrirfram hafi verið búist við að þetta yrði jafnframt lengsta áætlunarferð farþegaþotu í tíma talið, en þotan lenti nokkru fyrr en áætlað var. Þotan tók á loft á leið sinni aftur til Dubai klukkan 22:20 að staðartíma í gær og var þá búist við að þotan yrði 17 klukkustundir og 15 mínútur á leiðinni. Ferðin reyndist þó nokkuð styttri, eða 16 klukkustundir og 25 mínútur. Þó að Airbus A380 hafi flogið fyrstu ferðina á áætlunarleiðinni segir að Boeing 777-200LR verði síðar notuð. Emirates segir að mikil eftirspurn sé eftir sætum á nýju leiðinni. Áætlunarleið flugfélagsins Qantas frá Dallas í Bandaríkjunum til Sydney í Ástralíu var áður lengsta áætlunarleiðin sem í boði var, eða um 13.800 kílómetrar.Uppfært 12:45: Í fyrstu útgáfu fréttarinnar kom fram að um væri að ræða lengstu áætlunarleið flugfélags í sögunni. Það er rangt. Singapore Airlines flaug á árunum 2004 til 2013 milli Newark flugvallar í New York og Singapúr, eða um 15.300 kílómetra leið. Tók flugferðin að jafnaði um átján og hálfa klukkustund.
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira