Telur vörðuna Illþurrku vera hringgröf úr heiðni Kristján Már Unnarsson skrifar 17. mars 2016 20:30
Minjavörður Vesturlands hyggst kanna fornan steinhring ofan Skarðs á Skarðsströnd eftir ábendingu um að þar kunni að vera gröf eiginkonu landnámsmannsins Geirmundar heljarskinns. Þetta gætu þá verið einhverjar elstu fornminjar á Íslandi. Í þættinum Landnemarnir á Stöð 2 vakti Bergsveinn Birgisson rithöfundur athygli á steinhleðslum sem kallast Illþurrka og eru í fjallaskarði, um þrjá kílómetra austan við bæinn Skarð. Vitnaði Bergsveinn til 170 ára gamalla skrifa Kristjáns Magnusen, kammerráðs á Skarði, sem í héraðslýsingu frá árinu 1842 sagði þetta vera grafreit. Þarna væri grafin eiginkona Geirmundar heljarskinns, sem nefnd hafi verið Illþurrka, en nafnið telur Bergsveinn hljóðgervingu af nafni konu frá fjarlægu landi.Skarð á Skarðsströnd, landnámsbær Geirmundar heljarskinns. Illþurrka er í skarðinu um þrjá kílómetra fyrir austan bæinn.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Bergsveinn fékk álit fornleifafræðings, norskar konu, Gørill Nielsen, sem þekkir til slíkra grafa í Norður-Noregi, og taldi hún engan vafa leika á því að þetta væru fornleifar, að sögn Bergsveins. Þetta væri greinilegur manngerður hringur úr stórum hellusteini. Varðan ofan á er talin síðari tíma verk en það er steinhringurinn undir sem Bergsveinn telur að sé hringgröf, eins og tíðkuðust víða í Norður-Skandinavíu í fornheiðni.Illþurrka. Ef þetta er gröf eiginkonu Geirmundar heljarskinns gæti hún verið 1100 ára gömul.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.„Slíkar grafir eru til víða í Noregi og mjög merkilegt að enginn hafi veitt þessu athygli. Því að það eru ekki, að mér vitandi, til margar slíkar fornleifar á Íslandi, þessar hringagrafir úr hellusteini,“ segir Bergsveinn. Minjavörður Vesturlands, Magnús Sigurðsson, segir að Illþurrka sé hvorki friðlýst né á fornleifaskrá en hann hyggst eftir þessa ábendingu fara á staðinn við fyrsta tækifæri með vorinu og kanna hleðslurnar. Bergsveinn Birgisson rithöfundur í viðtali á Ögvaldsnesi í Noregi, en þar er Geirmundur heljarskinn talinn hafa alist upp sem konungssonur.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Dalabyggð Fornminjar Landnemarnir Tengdar fréttir Landnemarnir - Þrælahald og kvennabúr Geirmundar heljarskinns „Það segja vitrir menn, að hann hafi göfgastur verið allra landnámsmanna á Íslandi,“ segir Landnámabók um Geirmund heljarskinn. 11. mars 2016 14:23 Er þetta Silfurbrú Ólafar ríku á Skarði? Steinhlaðin braut, svokölluð Silfurbrú, sem Ólöf ríka er talin hafa látið enska þræla leggja á fimmtándu öld, gæti verið fundin. Bændur á Skarði segjast ekki í vafa um að hleðslur við rætur Skarðsfjalls séu hin forna Silfurbrú. Á fimmtándu öld var Skarð á Skarðsströnd mesta höfuðból landsins. Þar er talið að sama ættin hafi búið frá landnámsöld og núverandi bóndi, Kristinn Jónsson, hikar ekki við að segja að Ólöf ríka sé mesti kvenskörungur sem Ísland hefur alið. Gröf hennar er undir altari Skarðskirkju og altarisbríkin, sem Ólöf er sögð hafa gefið kirkjunni, er talin varðveita mynd hennar. Hefnd Ólafar ríku, vegna dráps Englendinga á eiginmanni hennar, Birni ríka, með orðunum frægu, "eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði", fólst meðal annars í því að hún hneppti fjölda Englendinga í þrældóm og herma sagnir að hún hafi látið þá leggja mikinn hlaðinn steinveg um Skarðsströnd. Með bílvegum og breyttum búskaparháttum greri yfir fornar leiðir en Hilmar, sonur Kristins bónda, leiðir okkur upp að rótum Skarðsfjalls þar sem greina má hleðslur. Hann kveðst sannfærður um að hér sé fundin Silfurbrúin. Þegar við spyrjum hvort Silfurbrúin hafi í raun verið týnd segja Skarðsverjar að hún hafi ef til vill glatast yngri kynslóðum, en eldri menn hafi vitað um þessar hleðslur, þó kannski án þess að gera sér grein fyrir hvað þetta væri. Skriður hafa fallið yfir hana og hún spillst en Hilmar segist þó sjá móta fyrir brautinni á fjögurra til fimm kilómetra kafla og telur að hún gæti hafa verið sjö til átta kílómetra löng. 10. maí 2013 18:56 Sagan þegar örninn flaug með Ragnheiði Fornar sagnir um að ernir hafi rænt börnum á Íslandi hafa fengið byr undir báða vængi eftir að myndir eru sagðar hafa náðst af slíkum atburði í Kanada. Myndbandið er sagt tekið í almenningsgarði í Montreal og hefur vakið mikla athygli en það sýnir amerískan gullörn steypa sér niður og læsa klónum í ungabarn sem sat á grasflötinni nokkra metra frá föður sínum. 19. desember 2012 18:58 Geirmundur heljarskinn sagður mongólskur og hörundsdökkur Sá sem sagður var göfgastur allra landnámsmanna Íslands er á norsku sögusafni sýndur mongólskur útlits og mjög hörundsdökkur. 14. mars 2016 18:45 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Sjá meira
Landnemarnir - Þrælahald og kvennabúr Geirmundar heljarskinns „Það segja vitrir menn, að hann hafi göfgastur verið allra landnámsmanna á Íslandi,“ segir Landnámabók um Geirmund heljarskinn. 11. mars 2016 14:23
Er þetta Silfurbrú Ólafar ríku á Skarði? Steinhlaðin braut, svokölluð Silfurbrú, sem Ólöf ríka er talin hafa látið enska þræla leggja á fimmtándu öld, gæti verið fundin. Bændur á Skarði segjast ekki í vafa um að hleðslur við rætur Skarðsfjalls séu hin forna Silfurbrú. Á fimmtándu öld var Skarð á Skarðsströnd mesta höfuðból landsins. Þar er talið að sama ættin hafi búið frá landnámsöld og núverandi bóndi, Kristinn Jónsson, hikar ekki við að segja að Ólöf ríka sé mesti kvenskörungur sem Ísland hefur alið. Gröf hennar er undir altari Skarðskirkju og altarisbríkin, sem Ólöf er sögð hafa gefið kirkjunni, er talin varðveita mynd hennar. Hefnd Ólafar ríku, vegna dráps Englendinga á eiginmanni hennar, Birni ríka, með orðunum frægu, "eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði", fólst meðal annars í því að hún hneppti fjölda Englendinga í þrældóm og herma sagnir að hún hafi látið þá leggja mikinn hlaðinn steinveg um Skarðsströnd. Með bílvegum og breyttum búskaparháttum greri yfir fornar leiðir en Hilmar, sonur Kristins bónda, leiðir okkur upp að rótum Skarðsfjalls þar sem greina má hleðslur. Hann kveðst sannfærður um að hér sé fundin Silfurbrúin. Þegar við spyrjum hvort Silfurbrúin hafi í raun verið týnd segja Skarðsverjar að hún hafi ef til vill glatast yngri kynslóðum, en eldri menn hafi vitað um þessar hleðslur, þó kannski án þess að gera sér grein fyrir hvað þetta væri. Skriður hafa fallið yfir hana og hún spillst en Hilmar segist þó sjá móta fyrir brautinni á fjögurra til fimm kilómetra kafla og telur að hún gæti hafa verið sjö til átta kílómetra löng. 10. maí 2013 18:56
Sagan þegar örninn flaug með Ragnheiði Fornar sagnir um að ernir hafi rænt börnum á Íslandi hafa fengið byr undir báða vængi eftir að myndir eru sagðar hafa náðst af slíkum atburði í Kanada. Myndbandið er sagt tekið í almenningsgarði í Montreal og hefur vakið mikla athygli en það sýnir amerískan gullörn steypa sér niður og læsa klónum í ungabarn sem sat á grasflötinni nokkra metra frá föður sínum. 19. desember 2012 18:58
Geirmundur heljarskinn sagður mongólskur og hörundsdökkur Sá sem sagður var göfgastur allra landnámsmanna Íslands er á norsku sögusafni sýndur mongólskur útlits og mjög hörundsdökkur. 14. mars 2016 18:45