Atlético áfram eftir sextán vítaspyrnur Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. mars 2016 22:30 Antoine Griezman, leikmaður Atlético, með boltann í kvöld. vísir/getty
Atlético Madrid komst í kvöld áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir að leggja PSV Eindhoven frá Hollandi á heimavelli sínum í vítaspyrnukeppni. Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli og sú var einnig staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem ekkert er skorað í hvorugum leiknum í einvígi í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Atlético var betra liðið í kvöld og skaut og skaut að marki gestanna en fékk ekki mikið af alvöru færum. Gestirnir frá Eindhoven voru mjög skipulagðir og vörðust vel og komu heimamönnum nokkuð á óvart. Skorað var úr fyrstu fjórtán vítaspyrnum kvöldsins eða þar til Luciano Narsingh skaut í slána fyrir PSV. Jeroen Zoet, markvörður gestanna, var þó ansi nálægt því að verja nokkrar spyrnur Atlético-manna. Spænski bakvörðurinn Juanfran var maðurinn sem skaut Atlético áfram þegar hann skoraði úr áttundu spyrnu heimamanna í röð, 8-7.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Sport Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 „Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Myndasyrpa: Sýndu af hverju þær eru bestar í heimi Sjá meira