Stelpurnar unnu Belga þar sem varamaður var hetjan í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2016 15:01 Íslenska 17 ára landsliðið. Vísir/Fésbókarsíða KSÍ
Íslenska sautján ára landsliðið byrjar vel í milliriðli Evrópumótsins en liðið vann 2-1 sigur á Belgíu í fyrsta leiknum sínum í dag. Milliriðilinn fer fram í Serbíu. Það var Blikinn Guðrún Gyða Haralz sem var hetja liðsins en hún skoraði sigurmarkið átta mínútum fyrir leikslok. Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, byrjar því vel með sautján ára landsliðið en stelpurnar hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína undir hans stjórn. Fyrstu tveir leikirnir voru vináttulandsleikir við Skota fyrr á þessu ári. Íslenska liðið fékk draumabyrjun í leiknum á móti Belgíu í dag þegar Valskonan Hlín Eiríksdóttir skoraði eftir aðeins tveggja mínútna leik en hún skoraði þá eftir stoðsendingu frá Öglu Maríu Albertsdóttur úr Stjörnunni. Íslensku stelpurnar voru 1-0 yfir í hálfleik en Belgar jöfnuðu metin á 58. mínútu. Guðrún Gyða Haralz kom inná sem varamaður á 66. mínútu og sex mínútum síðar skoraði hún sigurmarkið eftir stoðsendingu frá fyrirliðanum Kristínu Dís Árnadóttur sem kemur einnig úr Breiðabliki. Vegna hryðjuverkaárásarinnar í Belgíu var einnar mínútu þögn fyrir leik og leikmenn liðanna léku með sorgarbönd. Starfsfólk beggja liða sameinaðist og stóð saman sem ein heild á meðan mínútu þögnin varði. Leikmenn stóðu á miðju eins og hefð er fyrir.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Öruggur sigur City Enski boltinn Snævar setti heimsmet Sport Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Enski boltinn „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Körfubolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Körfubolti Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Fótbolti Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Enski boltinn Fyrsta jafntefli Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Sjá meira