Íris Björk: Munar rosalega að hafa svona sterka vörn fyrir framan sig Ingvi Þór Sæmundsson í TM-höllinni skrifar 9. maí 2016 21:56 Íris og Unnur Ómarsdóttir fagna í leiknum í kvöld. vísir/anton
Íris Björk Símonardóttir, markvörður Gróttu, átti enn einn stórleikinn þegar Seltirningar unnu öruggan sigur á Stjörnunni í öðrum leik liðanna í úrslitum Olís-deildar kvenna í Garðabænum í kvöld. Íris varði 20 af þeim 34 skotum sem hún fékk á sig í leiknum sem gerir 59% hlutfallsmarkvörslu. Hún var að vonum ánægð með eigin frammistöðu sem og alls Gróttuliðsins. „Við mættum mjög tilbúnar til leiks og ég er rosalega ánægð með okkur. Að sama skapi vorum við heppnar með að þær hittu á slakan dag eins og öll lið geta átt,“ sagði markvörðurinn öflugi í leikslok. „Ef við mætum svona til leiks held ég að við tökum þetta á föstudaginn. En þetta snýst um að halda áfram og við þurfum að koma okkur niður á jörðina,“ bætti Íris við en Grótta hefur unnið alla sjö leiki sína í úrslitakeppninni í ár. Íris hrósaði varnarleik Gróttu og segir hann eiga stóran þátt í hennar frammistöðu í markinu. „Ég er með frábæra vörn fyrir framan mig og ég held að Anna Úrsúla [Guðmundsdóttir] sé yfirleitt með svipað marga varða bolta og ég. Auðvitað munar rosalega um að hafa svona sterka vörn fyrir framan sig,“ sagði Íris hógvær að lokum.
Olís-deild kvenna Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport „Spennið núna beltin áhorfendur góðir, þetta er svakalegt“ Sport Fleiri fréttir Guðmundur gerði sínu gamla liði grikk með marki á elleftu stundu Leiðin að bikarnum klár og Hafnarfjarðarliðin mætast Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Valur áfram í undanúrslit bikarsins Sjö íslensk mörk í mikilvægum sigri Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Sigvaldi sneri aftur eftir stutt stopp á EM Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Biluð flugvél en gestirnir flugu inn í úrslitavikuna Metáhorf á Íslandi og þriðjungur Dana sá sigurinn Bæði lið Hauka gætu unnið bikarinn HSÍ sammála sérfræðingum og vill semja við Snorra Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Goðsögn Króata var öskrandi og hoppandi í stúkunni á bronsleiknum „Algjör þvæla að fara að rugga því eitthvað“ Íslensk landsliðskona til nítjánfaldra Noregsmeistara Sjá meira