Fimm fimleikakonur, þrír þjálfarar og tveir dómarar til Sviss Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2016 15:30 Kvennalandsliðið í fimleikum. Mynd/Fimleikasamband Íslands
Það verður flottur hópur frá Fimleikasambandi Íslands á Evrópumótinu í áhaldafimleikum kvenna sem fram fer í Bern í Sviss 29. maí til 3. júní næstkomandi. Tíu manns frá Íslandi taka þátt í Evrópumótinu að þessu sinni, fimm fimleikakonur, þrír þjálfarar og tveir dómarar. Ármann og Björk eiga bæði tvo keppendur að þessu sinni. Landsliðsþjálfarar hefur valið landsliðið og það skipa þær Agnes Suto (Gerplu), Dominiqua Alma Belányi (Ármanni), Irina Sazonova (Ármanni), Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir (Björk) og Tinna Óðinsdóttir (Björk). Íslenska kvennalandsliðið vann gull í liðakeppni á Norðurlandamótinu í dögunum en það fór fram á Íslandi að þessu sinni. Íslenski hópurinn á Norðurlandamótinu var einmitt skipaður þeim sömu og keppa á EM. Irina Sazonova tryggði sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Ríó á dögunum og vann auk þess gull á tvíslá og silfur í stökki. Dominiqua Alma vann silfur á tvíslá á NM og Tinna Óðinsdóttir (silfur) og Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir (brons) unnu bæði verðlaun á gólfi. Agnes Suto varð efst íslensku stúlknanna á NM og náði þriðja sætinu í fjölþraut sem er frábær árangur hjá henni en hún tók bolinn úr hillunni í haust eftir að hafa hætt keppni í tvö ár.
Fimleikar Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Guðrún Brá tveimur höggum frá því að öðlast fullan keppnisrétt á LET Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Joshua kjálkabraut Paul KA-menn fengu góða jólagjöf Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Sjá meira