Tölfræðin sem Haukar mega ekki sjá fyrir leikinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2016 16:00 Janus Daði Smárason. Vísir/Stefán
Afturelding tekur á móti Haukum í kvöld í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deildar karla í handbolta og geta Mosfellingar komist í 2-0 í einvíginu. Afturelding vann fyrsta leikinn 34-31 á Ásvöllum og Mosfellsliðið er því komið með heimavallarréttinn því liðið þarf bara að vinna heimaleiki sína til að vera öruggt með Íslandsmeistaratitilinn. Sagan er heldur betur á móti Haukum eftir úrslitin í fyrsta leiknum og það væri kannski best fyrir Gunnar Magnússon, þjálfara liðsins, að reyna að láta sína menn ekkert sjá eftirfarandi tölfræði. Sjö lið hafa nefnilega unnið fyrsta leik úrslitaeinvígisins á útivelli og öll hafa þau unnið Íslandsmeistaratitilinn. Vinni lið fyrsta leikinn á útivelli hafa tvö þeirra unnið einvígið 3-0 og fimm hafa unnið 3-1. Liðið sem tapar fyrsta leik á heimavelli hefur því ekki bara tapað í öll skiptin heldur aldrei komist í oddaleik heldur. Þessi byrjun á úrslitaeinvíginu í ár ætti einnig að boða heimasigur að Varmá í kvöld því sex síðustu liðin sem hafa komist í 1-0 á útivelli í lokaúrslitum karla 1992-2015 hafa líka unnið leik tvö. Síðasta lið til að tapa fyrsta leik á heimavelli og ná að jafna í leik tvö var Haukaliðið frá árinu 1994. Haukarnir unnu þá leik tvö 21-10 í Laugardalshöllinni þar Halldór Ingólfsson var markahæstur með 7 mörk og Petr Baumruk skoraði fjögur.Úrslitaeinvígin í sögu úrslitakeppni karla 1992-2015 þar sem fyrsti leikur vannst á útivelli:1994 Valur vann 20-14 útisigur á Haukum í fyrsta leik Haukar unnu leik tvö 21-19Valur vann einvígið 3-11996 Valur vann 31-26 útisigur á KA í fyrsta leik Valur vann leik tvö 26-23Valur vann einvígið 3-11998 Valur vann 21-18 útisigur á Fram í fyrsta leik Valur vann leik tvö 28-25Valur vann einvígið 3-12011 FH vann 22-21 útisigur á Akureyri í fyrsta leik FH vann leik tvö 28-26FH vann einvígið 3-12012 HK vann 26-23 útisigur á Haukum í fyrsta leik HK vann leik tvö 29-26HK vann einvígið 3-02013 Fram vann 20-18 útisigur á Haukum í fyrsta leik Fram vann leik tvö 35-30Fram vann einvígið 3-12015 Haukar unnu 23-22 útisigur á Aftureldingu í fyrsta leik Haukar unnu leik tvö 21-18Haukar unnu einvígið 3-0
Olís-deild karla Mest lesið Sammála Eiði pabba sínum um heimskupör Fótbolti McGregor í langt bann en gæti keppt í Hvíta húsinu Sport Lugu til um afa og ömmur sjö landsliðsmanna Fótbolti „Ef ég finn leikmann sem ég tel að bæti liðið þá tek ég hann“ Sport Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 102-89 | Fyrsti sigur Keflvíkinga í hús Körfubolti „Áttum okkur á því að við erum með skotmark á okkur“ Sport Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-80| Njarðvíkursigur í spennutrylli Körfubolti Aðdáendur pirraðir eftir „ákvörðun“ LeBron James Körfubolti Glódís gat ekki stöðvað slátrunina Fótbolti Gætu kvatt Bestu deildina án þjálfarans og lykilmanna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lovísa Thompson kemur aftur inn í íslenska A-landsliðið Sjáðu svakalega vítakeppni þegar frændliðin börðust í bikarnum Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Laus úr útlegðinni og mættur heim Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Sjá meira