Ásmundur kominn með Framara í toppbaráttuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2016 20:24 Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram. Vísir/Andri Marinó
Framarar unnu endurkomusigur á Leikni Reykjavík í Inkasso-deildinni á Laugardalsvellinum í kvöld. Sigurinn skilar Framliðinu upp í fjórða sæti deildarinnar með tólf stig. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram, er heldur betur að gera góða hluti með Framara eftir erfiða byrjun. Fram-liðið fékk aðeins tvö stig í fyrstu þremur leikjum sínum en hefur síðan náð í 10 af 12 stigum í boði. Þetta var þriðji sigur liðsins í undanförnum fjórum deildarleikjum og þá eru Framarar einnig komnir í átta liða úrslit Borgunarbikars karla. Leikurinn í kvöld byrjaði þó ekki vel því Kristján Páll Jónsson kom Leikni í 1-0 á 49. mínútu en Framarar snéru leiknum við með tveimur mörkum á sex mínútna kafla. Hlynur Atli Magnússon jafnaði leikinn á 70. mínútu og Dino Gavric skoraði síðan sigurmarkið á 76. mínútu. Lokamínúturnar voru samt dýrkeyptar því tveir leikmenn Fram fengu þá sitt annað gula spjald og þar með rautt. Ingiberg Ólafur Jónsson fékk rautt spjald á 84. mínútu og Ivan Bubalo fékk síðan rauða spjaldið á þriðju mínútu í uppbótartíma. Leiknismenn byrjuðu tímabilið vel en ekkert hefur gengið síðan í lok maí og þetta var fjórða tap liðsins í röð í deild og bikar. Upplýsingar um markaskorar eru fengnar frá úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Sport Fleiri fréttir „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Uppgjör og viðtöl: Valur – Keflavík 1-1 | Tvö lið sem lengir eftir sigri Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Dean Martin kveður ÍA og tekur við liði í Óman Markaveisla og varamenn gerðu sig gildandi í Breiðholti Vestri í toppbaráttu eftir afar sætan sigur Má ekki spila en hjálpar til við met: „Frekar skrýtið að horfa á þessa leiki“ Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Sjá meira