Vilhjálmar Alvar dæmdi vítaspyrnu í öðrum Evrópuleiknum í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. júlí 2016 21:42 Vilhjálmur Alvar hefur fengið stór verkefni á alþjóðavettvangi á þessu ári. vísir/anton
KR gerði í kvöld 3-3 jafntefli við svissneska liðið Grasshopper í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á Alvogen-vellinum. KR-ingar voru ekki einu fulltrúar Íslands í Evrópudeildinni í kvöld því Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmdi leik Genk og Budućnost Podgorica í Belgíu. Honum til aðstoðar voru Gylfi Már Sigurðsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson. Ívar Orri Kristjánsson var fjórði dómari. Vilhjálmur, sem dæmir fyrir KV, systralið KR, dæmdi vítaspyrnu á gestina frá Svartfjallalandi á 17. mínútu í leiknum í kvöld. Neeskens Kebano skoraði úr vítinu og Mbwana Samatta bætti svo öðru marki við 11 mínútum fyrir leikslok og 2-0 sigur Genk staðreynd. Vilhjálmur dæmdi alls 17 aukaspyrnur í leiknum og gaf leikmönnum Budućnost Podgorica þrjú gul spjöld. Þetta var annar leikurinn sem Vilhjálmur dæmir í Evrópudeildinni í ár en hann sá einnig um flautuleik hjá Hearts og FC Infonet í 1. umferð forkeppninnar. Þá lyfti hann gula spjaldinu átta sinnum og dæmdi auk þess vítaspyrnu á eistneska liðið.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira