Ítalía á barmi bankakreppu sæunn gísladóttir skrifar 15. júlí 2016 07:00 Höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópu.
Ítalska bankakerfið er að hruni komið sökum lána sem ólíklegt er að verði nokkurn tímann endurgreidd að fullu. Það sem af er ári hafa hlutabréf í stærstu bönkum landsins lækkað um allt að sjötíu prósent. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, telur þó að lausn muni finnast á málinu. Lán í vanskilum í ítalska bankageiranum nema nú 360 milljörðum evra, jafnvirði 49.000 milljarða íslenskra króna, og eru um sautján prósent af heildarbankalánum á Ítalíu. Upphæðin nemur fimmtungi af vergri árlegri landsframleiðslu Ítalíu. Business Insider greinir frá því að lélegu lánin hafi margfaldast frá byrjun fjármálakreppunnar árið 2008, auk þess sem ítalska hagkerfið sé ennþá átta prósentum minna en fyrir kreppuna. Hlutabréf í ítölskum bönkum hafa hríðfallið á árinu. Í gær höfðu hlutabréf í Banco Popolare lækkað um 51 prósent það sem af er ári, hlutabréf í Unicredit um 21 prósent og í Banca Monte dei Paschi di Siena um 71 prósent. Greiningaraðilar óttast smitáhrif til annarra evrópskra banka, og að mögulega sé önnur fjármálakreppa í aðsiglingu. Leiðtogar Evrópuríkja sem funduðu í vikunni telja þó að lausn muni finnast í málinu.
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira