Mörg börn meðal hinna látnu í Tyrklandi Samúel Karl Ólason skrifar 22. ágúst 2016 11:27 Frá jarðarför eftir árásina. Vísir/EPA
Af þeim 51 sem lést í sjálfsmorðsárás í brúðkaupi í Tyrklandi á laugardaginn voru minnst 29 undir átján ára aldri. Þá voru 22 undir fjórtán ára aldri. Sá sem sprengdi sig í loft upp er sagður hafa verið tólf til fjórtán ára. Nærri því 70 manns særðust í árásinni. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur kennt Íslamska ríkinu um árásina. Hún var gerð á brúðkaup Kúrda í bænum Gaziantep, sem liggur nærri landamærum Sýrlands. Samkvæmt BBC hefur lengi verið vitað að ISIS hafi verið með viðveru í bænum. Gerð sprengjunnar sem notuð var er sögð vera svipuð þeim sem hafi verið notaðar til fyrri árása gegn samkomum Kúrda í Tyrklandi. Hernaðarbandalag Kúrda og Araba í Sýrlandi hefur sótt hart fram gegn Íslamska ríkinu þar í landi á síðustu mánuðum, með stuðningi Bandaríkjanna og annarra ríkja.Sjá einnig: ISIS nota þroskaskert börn til sjálfsmorðsárása Lögregluþjónar á sjálfsstjórnarsvæði Kúrda stöðvuðu í gær ungan dreng sem bar sprengjubelti um sig í borginni Kirkuk. Samkvæmt Sky News, þar sem sjá má myndir af atvikinu, höfðu tvær árásir verið gerðar fyrr um daginn þegar drengurinn var stöðvaður. Hann er sagður hafa verið mest þrettán ára gamall.
Mið-Austurlönd Tengdar fréttir Tala látinna kominn yfir 50 í Tyrklandi Yfir hundrað særðir eftir sprengjuárás í brúðkaupsveislu í bænum Gaziantep í gærkvöld. ISIS kennt um. 21. ágúst 2016 14:01 Forseti Tyrklands segir árásarmanninn vera 12-14 ára gamlan Recep Erdogan segir árásarmanninn í sjálfsmorðsárás í gær vera 12-14 gamlan ungling. Yfir fimmtíu manns úrskurðaðir látnir og í kringum sjötíu særðir. 21. ágúst 2016 16:06 Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Pútín sló öll met Erlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Erlent Fleiri fréttir Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Sjá meira
Tala látinna kominn yfir 50 í Tyrklandi Yfir hundrað særðir eftir sprengjuárás í brúðkaupsveislu í bænum Gaziantep í gærkvöld. ISIS kennt um. 21. ágúst 2016 14:01
Forseti Tyrklands segir árásarmanninn vera 12-14 ára gamlan Recep Erdogan segir árásarmanninn í sjálfsmorðsárás í gær vera 12-14 gamlan ungling. Yfir fimmtíu manns úrskurðaðir látnir og í kringum sjötíu særðir. 21. ágúst 2016 16:06