Haukar ætla sér að taka titilinn þriðja árið í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. september 2016 12:00 Gunnar Magnússon er á sínu öðru tímabili með Hauka. vísir/anton
Séu formenn, þjálfarar og fyrirliðar liðanna í Olís-deild karla sannspáir verða Haukar Íslandsmeistarar þriðja árið í röð. Og það er markmiðið á Ásvöllum segir Gunnar Magnússon, þjálfari liðsins. „Við ætlum að vinna þetta þriðja árið í röð. Við erum með þéttan og góðan hóp en gerum okkur grein fyrir að það eru mörg lið sem ætla sér titilinn og deildin verður jafnari en í fyrra,“ sagði Gunnar. Haukar hafa fengið sterka leikmenn til sín í sumar og breiddin í hópnum er mikil. „Við erum með aðeins þéttari hóp en í fyrra. Auðvitað söknum við nokkurra reynslumikilla manna og Tjörvi [Þorgeirsson] er í erfiðum meiðslum og það er óvíst með hann í vetur. En við höfum fengið góða menn í staðinn og þeir eru að komast inn í þetta,“ sagði Gunnar en þeir Daníel Þór Ingason, Þórður Rafn Guðmundsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Andri Heimir Friðriksson bættust við leikmannahóp Hauka í sumar. Um síðustu helgi tryggðu Íslandsmeistararnir sér sæti í 2. umferð forkeppni EHF-bikarsins þar sem þeir mæta Alingsås frá Svíþjóð. En hvaða möguleika eiga Haukar gegn sænska liðinu? „Það verður skemmtilegt að mæta þeim og gaman að bera sig saman við topplið í Svíþjóð. Það er erfitt að segja fyrirfram en við ætlum okkur áfram,“ sagði Gunnar. Eins og áður sagði eru Haukar Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára. En hefur Gunnar áhyggjur af því að leikmenn Hauka séu orðnir saddir eftir velgengni síðustu ára? „Nei, ég hef ekki áhyggjur af því en það verður alltaf meira krefjandi á hverju ári. Það verður ekkert auðveldara að „mótivera“ menn en það er þannig karakter í þessu liði að ég hef ekki áhyggjur af því,“ sagði Gunnar sem fer með Hauka á sinn gamla heimavöll í Vestmannaeyjum í dag.Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla Mest lesið Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Leikmenn hafa neitað að koma til Juventus Fótbolti Fleiri fréttir Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira