Bretar og Frakkar munu reisa fjögurra metra háan múr í Calais Atli Ísleifsson skrifar 7. september 2016 08:49 Múrinn verður hannaður til að koma í veg fyrir að flóttamenn komist inn á akbrautina og klifri um borð í vörubíla og önnur farartæki á leið sinni til Bretlands. Vísir/AFP
Bresk stjórnvöld hyggjast reisa fjögurra metra háan múr í frönsku hafnarborginni Calais til að stemma stigu við straum flóttafólks til Bretlands. Múrinn verður um kílómetri að lengd og liggja meðfram akbraut sem liggur að höfninni. „Fólk er enn að komast í gegn,“ sagði Robert Goodwill, ráðherra innflytjendamála, þegar hann kom fyrir fastanefnd breska þingins sem fjallar um innanríkismál. „Við höfum þegar komið upp girðingu. Nú komum við upp múr.“ Í frétt Independent segir að múrinn verði hannaður til að koma í veg fyrir að flóttamenn komist inn á akbrautina og klifri um borð í vörubíla og önnur farartæki á leið sinni til Bretlands. Goodwill segir að framkvæmdir muni hefjast fljótlega og að bresk og frönsk stjórnvöld hafi náð saman um framkvæmdina sem sé áætluð kosta um 17 milljónir punda, um 2,6 milljarða króna. Mikill fjöldi flóttafólks hefur síðustu mánuði safnast saman í Calais þar sem þeir hafa beðið færis eftir að komast yfir Ermarsundið og til Bretlands.
Flóttamenn Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Erlent Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Erlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Fleiri fréttir Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Sjá meira