Rithöfundar hefja upp raust í MH Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 22. september 2016 13:15 Gerður Kristný er ein þeirra sem ætla að lesa upp í MH í kvöld. Mynd/Auðunn Níelsson
Menntaskólinn við Hamrahlíð fagnar fimmtíu ára afmæli sínu í þessari viku með ýmsum hætti. Skólinn hefur löngum verið þekktur fyrir að fóstra listamenn og í kvöld hefja rithöfundar þar upp raust sína. Hamraskáldin svokölluðu munu lesa úr verkum sínum í Norðurkjallara, meðal þeirra eru Bragi Ólafsson, Bryndís Björgvinsdóttir Gerður Kristný, Hallgrímur Helgason, Hermann Stefánsson, Margrét Lóa Jónsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Yrsa Þöll Gylfadóttir og Þórunn Erlu Valdimarsdóttir. Sumir þessara rithöfunda birtu sín fyrstu ljóð í skólablaði MH, Beneventum, en hafa síðan haslað sér völl í bókmenntalífinu svo um munar. Dagskráin hefst klukkan 20.30 og aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Af öðrum viðburðum afmælisvikunnar má minnast á fyrirlestraröðina Aftur til framtíðar, þar sem fyrrverandi nemendur snúa aftur og ausa af viskubrunni sínum fyrir núverandi nemendur, gesti og gangandi, og afmælishátíð á laugardag sem hefst klukkan tvö og lýkur með stórtónleikum á hátíðasal skólans. Nánari upplýsingar um afmælishátíð MH má finna á mh.is. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. september 2016.
Menning Tímamót Reykjavík Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira