Stóri glugginn skelltist aftur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2016 06:00 „Þetta er glatað og alveg ömurleg tilfinning. Það voru allir svo spenntir fyrir þessu. Þetta er versta tilfinning sem ég hef fundið fyrir í langan tíma,” sagði Elías Már Ómarsson eftir leikinn. Hann skoraði í gær og var markahæsti leikmaður Íslands í keppninni. Hér er hann með Tómasi Inga aðstoðarþjálfara eftir leik. Vísir/Ernir
Fyrir tveimur árum var það útivallarmark á 90. mínútu sem kom í veg fyrir að íslensku strákarnir í 21 árs landsliðinu kæmust á EM en í gærkvöldi var það skelfilegur seinni hálfleikur sem eyðilagði EM-drauminn. Íslenska liðið tapaði 4-2 fyrir Úkraínu í Laugardalnum í gær og verður því ekki meðal þeirra tólf þjóða sem keppa á EM í Póllandi næsta sumar. Stóri glugginn sem strákana dreymdi um að komast í opnast aldrei þrátt fyrir að þeir hefðu allt til alls til að leika eftir afrek gullkynslóðarinnar frá því fyrir fimm árum.Allt leit vel út í hálfleik Allt leit vel út eftir nítján hálfleiki af tuttugu. Daníel Leó Grétarsson hafði komið íslenska liðinu yfir á 22. mínútu og þetta góða varnarlið var nú aðeins 45 mínútum frá sæti á EM. Liðið skoraði ekki mörg mörk í keppninni en það var hægt að treysta á það að strákarnir gæfu ekki mörg færi á sér. Íslenska liðið hafði fengið aðeins fimm mörk á sig í fyrstu níu leikjum sínum í keppninni og haldið marki sínu hreinu í fimm af síðustu sex leikjum. Það þarf því ekki að taka það fram að fjögur mörk á 45 mínútum var algjörlega út úr karakter. „Við klúðruðum þessu sjálfir. Í stöðunni 1-0 leið mér ágætlega en í seinni hálfleik leystist leikurinn upp þegar þeir jafna og það er nákvæmlega það sem við vildum ekki,“ segir Aron Elís Þrándarson, framherji íslenska liðsins. „Við fengum klaufalegt mark á okkur og það breytti leiknum. Við þurftum að leysa upp leikinn og spila bara sóknarbolta. Við erum ekki góðir í því,“ sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska liðsins.Elías Már Ómarsson reynir skot í leiknum. Vísir/Ernir Íslenska liðið átti að skora miklu fleiri í mörk í hálfleik þar sem framganga strákanna minnti oft á frammistöðu A-landsliðsins á móti Tyrkjum á dögunum. Íslenska liðið var með algjöra yfirburði og allt leit vel út. „Við áttum bara að nýta færin í fyrri hálfleik. Þá hefði þetta verið búið,“ sagði Eyjólfur. Um leið og Úkraínumenn jöfnuðu með slysalegu marki breyttist allt. „Við þurftum að opna okkur og því fór sem fór. Við áttum að klára þetta í fyrri hálfleik enda voru þeir ekki að skapa sér færi. Mörkin sem við fengum á okkur voru bara klaufaleg,“ sagði Eyjólfur. Hann hefur nú tvisvar á tveimur árum þurft að horfa upp á sína stráka missa af EM-lestinni á síðustu stundu. „Mér líður illa. Sérstaklega fyrir hönd strákanna. Þeir komu sér í þessa stöðu og því miður náðu þeir ekki að nýta sér þetta tækifæri. Því miður stóðust þeir ekki prófið. Seinni hálfleikur var ekki nógu öflugur hjá okkur,“ sagði Eyjólfur. Aron Elís gat heldur ekki leynt vonbrigðum sínum.Vísir/ErnirKlúðruðum þessu í síðasta leik „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig tilfinningin er. Þetta er tveggja ára vinna og við klúðrum þessu í síðasta leik á heimavelli,“ sagði Aron Elís Hjörtur Hermannsson var fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum. „Þetta er gífurlega súrt eftir alla þessa vegferð. Við gefum allt í okkar leik í dag og spilum líklega besta fyrri hálfleik sem við höfum spilað í keppninni. Við erum yfir á öllum vígstöðvum,“ segir Hjörtur en svo breyttist allt í seinni hálfleiknum. „Þeir lágu á okkur og markið dettur á ótrúlegan hátt. Þetta hefði kannski fallið með okkur hefði það ekki dottið inn. Það var mikið högg á fá það á sig en eftir það þurftum við að sækja þessi þrjú stig,“ sagði Hjörtur og hann horfir björtum augum til framtíðar nú þegar hann kveður yngri landsliðin.Flottir fótboltamenn á leiðinni „Þetta er súrt en eins og við sáum í þessum leik þá er hellingur af flottum fótboltamönnum á leiðinni og það boðar bara gott fyrir íslenska knattspyrnu,“ sagði Hjörtur að lokum. Gullkynslóðin, sem skrifar þessa dagana nýja sögu með A-landsliðinu, er því áfram eina 21 árs landsliðið sem hefur komist alla leið í úrslitakeppnina. Það er hins vegar alltaf næsta ár og næsta keppni. Þessir strákar, sem misstu af stóra glugganum næsta sumar, finna vonandi aðrar leiðir í betri deildir Evrópu í framtíðinni.Frakkar sátu líka eftir Það er erfitt að komast í hóp þeirra tólf þjóða sem keppa um Evrópumeistaratitilinn. Stjörnum prýtt lið Frakka sat þannig eftir með sárt ennið alveg eins og það íslenska. Makedóníumenn, sem töpuðu 3-0 fyrir Íslandi fyrir aðeins sextán mánuðum, unnu riðilinn og verða með á EM í Póllandi næsta sumar.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Sjá meira