Rjúpnaskyttan ekki með farsíma meðferðis Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 19. nóvember 2016 11:05 Leit þyrlu Landhelgisgæslunnar haldið áfram þegar veður leyfir. Mynd/Landhelgisgæslan
Rjúpnaskyttan sem leitað hefur verið frá klukkan átta í gærkvöldi var ekki með farsíma meðferðis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór á vettvang í gærkvöldi eftir beiðni frá lögreglu um aðstoð þyrlu við leitina. Þyrlan leitaði eins og aðstæður buðu en skyggni var slæmt og þurfti að hætta leit rétt eftir klukkan eitt í nótt. Ekki var hægt að notast við miðunarbúnað vegna farsíma þar sem maðurinn var ekki með farsíma meðferðis. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi til leitar að skyttunni. Maðurinn gekk til rjúpa frá sumarhúsabyggðinni í landi Einarsstaða á Héraði og óskað var eftir aðstoð þegar hann skilaði sér ekki til byggða fyrir myrkur. Alls hafa um 200 björgunarsveitamenn tekið þátt í leitaraðgerðunum og eru fleiri í startholunum ef þörf krefur. Þá hefur Rauði krossinn sett upp aðstöðu í grunnskólum þar sem björgunarsveitarfólk getur hvílt sig milli leitarlota. Þyrlan og áhöfn hennar biðu á Egilsstöðum í nótt og verður leit framhaldið með þyrlu um leið og veðuraðstæður leyfa.
Veiðimanni á rjúpu bjargað Tengdar fréttir Rjúpnaskyttu leitað á Austurlandi Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið kallaðar út til leitar að rjúpnaskyttu sem saknað er við Einarsstaði. 18. nóvember 2016 20:39 Rjúpnaskyttu leitað í alla nótt Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa í alla nótt leitað manns sem gekk í gær til rjúpna austur á Héraði. 19. nóvember 2016 07:38 Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Bakkakotsmálið: „Það er algjört afskiptaleysi í þessum þunga málaflokki“ „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Sjá meira
Rjúpnaskyttu leitað á Austurlandi Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið kallaðar út til leitar að rjúpnaskyttu sem saknað er við Einarsstaði. 18. nóvember 2016 20:39
Rjúpnaskyttu leitað í alla nótt Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa í alla nótt leitað manns sem gekk í gær til rjúpna austur á Héraði. 19. nóvember 2016 07:38