Forn varða talin hluti af launspeki landnámsins Kristján Már Unnarsson skrifar 27. nóvember 2016 08:30 Varðan á Sandfelli. Fjær sést í Vífilfell, til hægri, og Hengil. Stöð 2/Kristján Már Unnarsson.
Stór varða í útjaðri Reykjavíkur var hluti af útmældu kerfi sem fornmenn komu sér upp til að marka sér táknræna heimsmynd sem tengdist árstíðaskiptum og gangi himintungla. Þessi tilgáta kemur fram í næsta þætti Landnemanna á Stöð 2, mánudagskvöld, í viðtali við Þórarin Þórarinsson arkitekt, en hann er í hópi áhugamanna sem rannsaka kenningar fræðimannsins Einars Pálssonar. Varðan stendur á Sandfelli, suðvestan Sandskeiðs, í 340 metra hæð og er sögð ævaforn. Ásamt fjallinu Keili, og fleiri vörðum á áberandi stöðum í kringum Reykjavík, á þessi varða að hafa myndað einskonar goðfræðilega heimsmynd og sólúr, sem tengd voru landnámsjörð Ingólfs Arnarsonar í Reykjavík og landnámsjörð Helga bjólu á Hofi á Kjalarnesi. Þannig myndi bústaðir þeirra beina sólstöðulínu í Keili.Einar Pálsson, höfundur rita um rætur íslenskrar menningar. Hann lést árið 1996.Einar Pálsson, sem lést árið 1996, vakti þjóðarathygli á árunum í kringum 1970 með ritröð sem hann nefndi Rætur íslenskrar menningar. Fyrsta bókin, Baksvið Njálu, kom út árið 1969, en þar birtist ný og byltingarkennd sýn á Íslendingasögur. Þannig taldi Einar að Njálssaga væri táknsaga og að úr henni mætti lesa goðfræðilegt táknmál, sem ætti sér rætur í ævafornri talnaspeki, byggðri á heilögum tölum. Í þættinum verður eyðijörðin Steinkross á Rangárvöllum skoðuð í fylgd Péturs Halldórssonar myndlistarmanns en þar telur Pétur að birtist samsvarandi kerfi og sjá megi í steinhringnum Stonehenge í Englandi. Einar Pálsson taldi að Steinkross væri miðja hrings sem hann nefndi Hjól Rangárhverfis. Það hafi verið tengt bæði áberandi kennileitum, eins og Þrídröngum í hafi, og lykiljörðum á Suðurlandi, þar á meðal Bergþórshvoli og Skálholti. Slíkur hringur hafi verið goðfræðilegur grundvöllur hins íslenska goðaveldis og í samræmi við hugmyndir fornmanna um heimsmynd.Þrídrangar í hafi voru eitt af kennileitunum sem mörkuðu Hjól Rangárhverfis, samkvæmt tilgátu Einars Pálssonar.Teikning/Sigurður Valur Sigurðsson.Kenningar Einars Pálssonar hafa ætíð verið umdeildar og ýmist álitnar stórkostleg uppgötvun eða hreint bull. Í þættinum verður rætt við háskólafræðimenn með gjörólíka sýn á kenningar hans. Þar kemur fram að kenningar af þessu tagi hafi á undanförnum árum verið að öðlast viðurkenningu meðal vísindastofnana sem sérstakt fræðasvið, Ethnoastronomy. Landnemarnir eru á dagskrá Stöðvar 2 kl. 19.20 á mánudagskvöld, strax að loknum fréttum.
Fornminjar Landnemarnir Tengdar fréttir Vantar marga kafla inn í Íslandssöguna Þetta segir Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur, höfundur nýrrar bókar um Árdaga Íslendinga. 13. nóvember 2016 20:45 Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15 Íslenskur landnámshöfðingi reisti stærsta víkingaskálann Stærsti víkingaskáli sem fundist hefur á Norðurlöndum er nú talinn hafa verið reistur af einum af landnámsmönnum Íslands. 14. nóvember 2016 18:47 Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Vantar marga kafla inn í Íslandssöguna Þetta segir Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur, höfundur nýrrar bókar um Árdaga Íslendinga. 13. nóvember 2016 20:45
Landnemarnir sigla áfram til Grænlands og Vínlands Landnám Íslendinga á Grænlandi með siglingu Eiríks rauða árið 985 og dularfullt hvarf norrænu þjóðarinnar um 500 árum síðar er meðal þess fjallað verður um í þáttaröðinni "Landnemarnir“ sem heldur áfram á Stöð 2 í vetur. 13. nóvember 2016 10:15
Íslenskur landnámshöfðingi reisti stærsta víkingaskálann Stærsti víkingaskáli sem fundist hefur á Norðurlöndum er nú talinn hafa verið reistur af einum af landnámsmönnum Íslands. 14. nóvember 2016 18:47
Voru skógarnir svona veglegir við landnám? "Ég er sannfærður um það að allt láglendi landsins hafi litið svona út eins og þessi mynd sýnir,” segir Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri. 20. nóvember 2016 12:00