Bermúda versta skattaskjólið Sæunn Gísladóttir skrifar 14. desember 2016 11:30 Bermúda er eitt af fjórum breskum yfirráðasvæðum á listanum. Vísir/Getty
Eyjan Bermúda í Atlantshafi er versta skattaskjólið fyrir fyrirtæki í heiminum samkvæmt nýrri skýrslu Oxfam. The Guardian greinir frá því að þrjú bresk yfirráðasvæði utan Bermúda séu á listanum. Meðal fimmtán verstu skattaskjólanna eru Cayman-eyjar, Jersey og Bresku jómfrúaeyjar (þeirra á meðal er Tortóla). Oxfam greindi frá því árið 2012 að bandarísk fyrirtæki hefðu tilkynnt um 80 milljarða dollara hagnað í Bermúda, sem er meira en samanlagður hagnaður þeirra í Japan, Kína, Þýskalandi og Frakklandi. Oxfam hefur gagnrýnt starfsemi skattaskjóla fyrir að hafa af ríkisstjórnum fé sem mikil þörf sé á. Yfirvöld í Bermúda hafa hins vegar gagnrýnt skýrslu Oxfam og segja hana uppfulla af villum. Þau segjast jafnframt taka þátt í alþjóðlegu starfi gegn skattaundanskotum. Stefnt er að því að lækka fyrirtækjaskatt í Bretlandi úr 20 prósentum í 17 prósent fyrir árið 2020 til að ýta undir það að bresk fyrirtæki greiði skatt í heimalandi sínu.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira