Þjóðverjar rúlluðu yfir Austurríkismenn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. janúar 2017 19:57 Dagur gefur bendingar á hliðarlínunni í kvöld. vísir/getty
Evrópumeistarar Þjóðverja fóru ansi illa með Austurríkismenn þegar liðin mættust í vináttulandsleik í Rothenbach-Halle í Kassel í kvöld. Lokatölur 33-16, Þýskalandi í vil. Þetta var síðasti leikur þýska liðsins fyrir HM í Frakklandi sem hefst á miðvikudaginn. Dagur Sigurðsson hrósaði þarna sigri á vini sínum og fyrrum samherja úr íslenska landsliðinu, Patreki Jóhannessyni. Það var lítil spenna í leiknum í Kassel í kvöld. Austurríkismenn byrjuðu leikinn reyndar vel en Þjóðverjar tóku svo völdin og voru sex mörkum yfir í hálfleik, 17-11. Í seinni hálfleik dró enn í sundur með liðunum og á endanum munaði 17 mörkum á þeim, 33-16. Markaskorið dreifðist vel hjá þýska liðinu sem lítur vel út fyrir HM. Tobias Reichmann, Steffen Fäth og Jannick Kohlbacher skoruðu allir fjögur mörk fyrir Þýskaland í leiknum í kvöld. Nikola Bilyk, leikmaður Kiel, var langatkvæðamestur hjá Austurríki og skoraði átta mörk, eða helming marka liðsins. Þýskaland er í riðli með Króatíu, Hvíta-Rússlandi, Ungverjalandi, Síle og Sádí-Arabíu á HM. Fyrsti leikur þýska liðsins er gegn því ungverska á föstudaginn.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Íþróttamaður ársins missti meðvitund á sjúkrahúsi Sport Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ Handbolti „Er eiginlega bara enn þá að meðtaka þetta“ Sport Stuðningsmaður Man. United missir sætið sitt: „Ég er hjálparvana og vonlaus“ Enski boltinn Skellti á Zlatan og hélt einhver væri að gera símaat Fótbolti Extraleikarnir: Aðeins eitt stig á milli Nablans og Tomma í æsispennandi keilukeppni Sport Littler gerir andlitið sitt að skráðu vörumerki Sport „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Handbolti Real Madrid skoðaði vitlaust hné hjá Mbappé og gerði illt verra Fótbolti „Önnur sönnun fyrir hæfileikum hans, hugrekki og karakter“ Fótbolti Fleiri fréttir Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Elvar með stórleik í flottum sigri Sigurgangan endaði í síðasta leik fyrir úrslitakeppni Fer frá Selfossi til Svíþjóðar Stjarnan lætur Hrannar fara fyrir umspilið Lykilmenn lýsa yfir stuðningi við Alfreð Gagnrýnir HSÍ og bendir á misræmi: „Galið dæmi“ Meistaraskjöldurinn kom óvænt í leitirnar Bikarinn brotnaði við lyftingu HK flaug upp í Olís-deildina Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Sjá meira