Ætla að verja 41 billjón króna í endurnýjanlega orku fyrir 2020 Samúel Karl Ólason skrifar 5. janúar 2017 09:20 Borgir í norðanverðu Kína hafa nú í nokkrar vikur legið undir mengunarskýjum og hafa áhyggjur af samfélagslegum og efnahagslegum kostnaði þessarar mengunar vaxið að undanförnu. Vísir/AFP
Kínverjar munu verja um 41 billjón króna (361 milljarður dala) í uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa til ársins 2020. Orkustofnun ríkisins segir að það muni skapa um þrettán milljónir starfa, en með þessu vill ríkið draga úr mengun. Kína reiðir sig að miklu gífurlegu leyti á kol til orkuframleiðslu, en markmiðið er að vindorka, vatnsfallsvirkjanir, sólrafhlöður og kjarnorka skapi fimmtán prósent af orkuþörf Kína árið 2020. Það samsvarar brennslu um 580 milljón tonnum af kolum á ári. Eftir að átakinu líkur verður enn rúmlega helmingur af raforku Kína framleidd með brennslu kola. Til stendur að fimmfalda raforkuframleiðslu Kína með sólarrafhlöðum á næstu árum, sem samsvarar byggingu þúsund sólarorkuvera. Borgir í norðanverðu Kína hafa nú í nokkrar vikur legið undir mengunarskýjum og hafa áhyggjur af samfélagslegum og efnahagslegum kostnaði þessarar mengunar vaxið að undanförnu.Timelapse frá Peking
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira