Öruggur sigur í fyrsta stórmótsleik Kristjáns Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2017 18:14 Kristján hugsi á hliðarlínunni. vísir/epa
Svíar áttu ekki í neinum vandræðum með leggja Barein að velli, 33-16, í fyrsta leik sínum á HM í Frakklandi í dag. Þetta var jafnframt fyrsti leikur liðsins undir stjórn Kristjáns Andréssonar á stórmóti. Svíar eru með tvö stig í D-riðli, líkt og Egyptar sem unnu Katara fyrr í dag. Sænska liðið gekk frá leiknum í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 17-5, Svíþjóð í vil. Seinni hálfleikurinn var jafnari þótt sigurinn væri aldrei í hættu. Lokatölur 33-16, Svíum í vil. Hornamennirnir Jerry Tollbring og Mathias Zachrisson voru markahæstir í liði Svía. Tollbring skoraði 10 mörk og Zachirasson átta.Ludovic Fabregas skorar eitt sjö marka sinna gegn Japan.vísir/gettyFrakkar eru með fullt hús stiga í A-riðli eftir stórsigur á Japan, 19-31. Frakkar rústuðu Brasilíumönnum, 31-16, í fyrsta leik sínum. Japanir héldu í við Frakka framan af leik en heimamenn tóku á sprett undir lok fyrri hálfleiksins og leiddu með átta mörkum í hálfleik, 9-17. Í seinni hálfleik jókst munurinn enn frekar og þegar lokaflautið gall munaði 12 mörkum á liðunum, 19-31. Ludovic Fabregas var markahæstur í liði Frakklands með sjö mörk. Kentin Mahe kom næstur með fimm mörk. Kento Uegaki skoraði fimm mörk fyrir Japan.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Fleiri fréttir Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Epicbet sýni handboltann í leyfisleysi: „Enda ólöglegar síður“ Teitur inn í landsliðið Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið Sjá meira