Nýjar útlitsbreytingar sagðar auðvelda notkun á Snapchat Birgir Olgeirsson skrifar 13. janúar 2017 10:50 Í nýju uppfærslunni geta notendur Snapchat nánast fundið allt með einni hreyfingu, ólíkt áður þegar þurfti að fara í gegnum valmyndir forritsins. Vísir/Getty
Miklar útlitsbreytingar eru fyrirhugaðar á samfélagsmiðlinum Snapchat á næstunni. Forsvarsmenn Snapchat kynntu þessar breytingar sem munu birtast notendum miðilsins á næstu dögum. Helstu breytingarnar eru þær að það mun bætast við leitargluggi, ný flýtileið og „Global Live Story“ þar sem allir notendur miðilsins geta bætt við sögu og fylgst með framvindu hennar.Greint er frá því á vef Mashable þetta nýja útlit sé mun fágaðra en fyrri útgáfur og að leitin sé nú mun betri og geri þar með notendum auðveldara fyrir með að finna hluti. Þessi leitargluggi verður staðsettur fyrir ofan spjallið, myndavélina og þar sem Snapchat-sögur vina þinna birtast. Í leitarglugganum getur þú fundið vini þína og fengið flýtihnappa til að komast fljótt og örugglega á aðra staði forritsins. Þegar leitað er að nafni vinar birtist strax möguleiki á spjalli við hann. Þegar leitað er í nýju útgáfunni þá mun birtast flýtihnappur sem færir þér þá vini sem þú spjallaðir við síðast, farið beint í „Quick add“ þar sem þú sérð vinabeiðnir og þá notendur sem þú hefur ekki bætt við vinalistann þinn. Einnig er búið að breyta flýtileiðum því nú er einnig hægt að komast prófílsíðu-sína með því að smella Bitmoji í efra vinstra horninu. Áður fyrr var einungis hægt að gera það með því að renna fingri niður eftir skjánum. Á vinasíðunni geta notendur einnig séð bestu vini sína, eða þá vini sem þú hefur oftast samband við, en enginn annar en notandinn sjálfur mun sjá hverjir eru bestu vinir hans. Mashable segir að helsta breytingin sé sú hversu miklu auðveldara er að komast á milli staða í forritinu sjálfu, sem fjölmiðillinn segir að hafi legið lengi undir gagnrýni. Í nýju uppfærslunni geta notendur Snapchat nánast fundið allt með einni hreyfingu, ólíkt áður þegar þurfti að fara í gegnum valmyndir forritsins.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira