Enrique: Denis Suárez getur orðið nýi Harry Potter hjá Barcelona Tómas Þór Þórðarso skrifar 27. janúar 2017 12:00 Denis Suárez skorar mark fyrir Barcelona í gær. vísir/getty
Luis Enrique, þjálfari Spánarmeistara Barcelona, segir Denis Suárez, miðjumann liðsins, vera nógu góðan til að taka við af sjálfum Andrés Iniesta til lengri tíma á miðjunni hjá Katalóníurisanum. Suárez spilaði virkilega vel í 5-2 sigri Barcelona gegn Real Sociedad í spænska bikarnum í gær en hann skoraði tvö mörk er liðið komst í undanúrslitin. Enrique hrósaði honum í hástert eftir leikinn. „Suárez getur orðið eftirmaður Iniesta. Af hverju ekki?“ sagði Luis Enrique á blaðamannafundi eftir leikinn um hinn 23 ára gamla Suárez sem gekk í raðir Barcelona frá Villareal síðasta sumar. Andrés Iniesta er fyrir löngu búinn að tryggja sér stöðu sem einn af goðsögnum Barcelona en það fer að styttast í annan endann á veru hans á Nývangi. Iniesta er orðinn 32 ára gamall en er samt sem áður lykilmaður Katalóníuliðsins. „Leikmenn verða að þróast. Suárez verður að bæta sig en Iniesta er Harry Potter Barcelona-liðsins. Hann galdrar alltaf eitthvað fram og það verður erfitt að finna mann í staðinn fyrir hann. Denis er samt á réttri leið og vonandi getur hann orðið erfingi Iniesta,“ sagði Luis Enrique.
Spænski boltinn Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Enski boltinn „Einhver vildi losna við mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Fyrirmenni fótboltans á Norðurlöndum mæta til Íslands í vikunni Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum „Er að koma inn í hlutverk sem ég veit að ég er góð í“ „Einhver vildi losna við mig“ Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Vildi hvergi annarsstaðar spila Lehmann færir sig um set á Ítalíu Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG „Þetta var bara út um allt“ Wrexham áfram eftir vítaspyrnukeppni „Þetta var eflaust frábær leikur fyrir áhorfendur“ Nýtt hlaðvarp Sýnar um draumaliðsleik enska boltans FCK rassskellti frændur sína frá Malmö Uppgjörið: FHL – Fram 3-2 | Fyrsti sigur FHL í hús Uppgjörið: Víkingur R – Breiðablik 2-4 | Meistararnir áfram í stuði Uppgjörið: FH – Þór/KA 5-3 | Markasúpa í Hafnafirði Heimir fær aðeins einn leik og aganefndin hittir illa á Aftureldingu Dýrasti leikmaður í sögu City lánaður til Everton Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Sjá meira