Fjöldi mótmælti fyrirlestri Þórdísar Elvu og Toms Stranger Snærós Sindradóttir og Þórgnýr Einar Albertsson skrifa 16. mars 2017 07:00 Þórdís Elva og Tom Stranger er þau héldu TED-fyrirlestur. Mynd/TED „
Þetta er vettvangur glæps. Það er nauðgari í húsinu,“ hefur Lundúnamiðillinn Metro eftir mótmælandanum Zita Holbourne sem stödd var fyrir utan Southbank-ráðstefnuhúsið í Lundúnum í gær til að mótmæla erindi Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur og Toms Stranger. Erindið fjallaði um efni bókar þeirra, Handan fyrirgefningar, sem fjallar um samskipti þeirra í kjölfar þess að Stranger nauðgaði Þórdísi Elvu. Fyrirlesturinn átti að fara fram á ráðstefnu í Lundúnum um helgina en eftir undirskriftasöfnun og hávær mótmæli var fyrirlesturinn þá tekinn af dagskrá en var fluttur í gær. Fjöldi annarra mótmælenda var staddur fyrir utan húsið. Í viðtali við Metro sagði Holbourne að Stranger hafi ekki verið refsað. „Hér er verið að gefa honum vettvang og tækifæri til þess að ferðast um heiminn, tjá sig og græða peninga vegna þess að hann nauðgaði konu. Fyrir mér er það óásættanlegt.“ Mótmælendur voru vopnaðir skiltum sem meðal annars stóð á: „Ekkert réttlæti fyrir konur þýðir engan frið fyrir nauðgara.“ Alls voru um fimmtíu mótmælendur á svæðinu. Lögregla greindi frá því að enginn hefði verið handtekinn. Nokkrir mótmælendur ruddust þó á einu sinni inn í húsið en þeim var strax vísað út. Listrænn stjórnandi ráðstefnuhússins, Jude Kelly, sagði við Metro að eftir vandlega íhugun um mikilvægi umræðunnar fyrir almenning og frekari samtöl við þolendur kynferðisofbeldis, stuðningshópa og almenna borgara hafi hún tekið þá ákvörðun að færa fyrirlesturinn fram til dagsins í gær. Sjálf varð Þórdís Elva ekki vör við mótmælin. „Búið var að vísa þeim fáu einstaklingum sem höfðu sig í frammi burt þegar ég og meðhöfundur minn stigum á svið,“ segir hún. Þeir fjögur hundruð áhorfendur sem voru í salnum hafi sýnt þeim ýtrustu virðingu. Að sögn Þórdísar Elvu endurspegla þeir meirihlutann sem þau Stranger upplifa að sé jákvæður í garð framtaksins. Aftur á móti efist minnihlutinn um ágæti þess eða misskilji inntakið. „Aðrir viðburðir sem við höfum tekið þátt í hafa gengið vonum framar. Til dæmis mættu 1.600 manns til að hlusta á okkur á bókmenntahátíðinni í Adelaide í Ástralíu.“ Þá segist hún trúa staðfastlega á rétt þolenda til að finna sér sína leið til að græða sárin eftir ofbeldi. „Það er ekki til nein rétt eða röng leið til að bregðast við. Saga mín er persónuleg og ekki ætluð sem uppskrift fyrir aðra en ég vona að hún leiði til umræðu þar sem ábyrgðin á ofbeldi er lögð á herðar gerenda í stað þolenda,“ segir Þórdís Elva. Hún segir ofbeldi þrífast best í leynd og þöggun, andsvarið felist í opinni umræðu. „Að hún skuli reynast sumum erfið og sársaukafull er skiljanlegt en undirstrikar jafnframt hversu mikilvægt það er að halda áfram að rjúfa þögnina og setja ábyrgðina á réttan stað.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Fleiri fréttir Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Sjá meira