Sara Björk og félagar úr leik í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2017 20:40 Sara Björk Gunnarsdóttir í baráttu við hina frönsku Camille Abily. Vísir/Getty
Þýska liðið Wolfsburg er úr leik í Meistaradeildinni þrátt fyrir 1-0 sigur á útivelli í seinni leik sínum á móti franska liðinu Olympique Lyonnais í átta liða úrslitum Meistaradeildinni. Olympique Lyonnais vann fyrri leikinn 2-0 í Þýskalandi í síðustu viku og þar með 2-1 samanlagt. Hin norska Caroline Graham Hansen skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu átta mínútum fyrir leikslok en þýska liðinu tókst ekki að bæta við marki og tryggja sér framlengingu. Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg og lék í fyrstu 72 mínúturnar. Hún var tekin af velli sjö mínútum eftir að hún fékk gult spjald fyrir brot á bandarísku landsliðskonunni Alex Morgan. Þetta er í fyrsta sinn í fimm ár sem Wolfsburg kemst ekki í undanúrslit keppninnar en þýska liðið fór alla leið í úrslitaleikinn í fyrra. Það var einmitt Lyon-liðið sem vann Wolfsburg í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra. Sara Björk Gunnarsdóttir kom til Wolfsburg fyrir þetta tímabil en henni tókst aldrei að komast í undanúrslitin með sænska liðinu Rosengård og féll núna út í átta liða úrslitunum í fimmta sinn á síðustu sex árum. Rosengård féll einnig út úr Meistaradeildinni í kvöld en sænska liðið tapaði 3-0 samanlagt á móti spænska liðinu Barcelona.
Meistaradeild Evrópu Þýski boltinn Mest lesið „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Leggja ríginn til hliðar í tvo klukkutíma Sport Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Enski boltinn „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Handbolti Fleiri fréttir Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Sex handtökur í mótmælum fyrir leik í Evrópudeildinni Emilía skoraði annan leikinn í röð Logi á toppnum en Hákon á bekknum Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Ronaldo og félagar spila landsleik í sérstökum Eusébio-búningi Ólöf og Írena báðar í úrvalsliði Ivy-deildarinnar Suárez dæmdur í bann fyrir hælspark í mótherja og missir af risaleik Pálmi í ótímabundið leyfi Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst „Ég og Nik erum ágætis vinir“ „Vel gert að geta haldið áfram í svona ástandi“ Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Sjá meira