Gorsuch heitir sjálfstæði í Hæstarétti Samúel Karl Ólason skrifar 21. mars 2017 16:50 Neil M. Gorsuch, hæstaréttardómaraefni Donald Trump. Vísir/Getty
Neil M. Gorsuch, hæstaréttardómaraefni Donald Trump, hefur heitið sjálfstæði í störfum sínum verði hann staðfestur í embættið. Þá segir Gorsuch að hann hafi ekki lofað nokkrum aðila neinu varðandi úrskurði sína. Þetta sagði dómarinn við þingmenn, sem eiga að staðfesta hann, eða ekki, í embætti. Dómarinn kom sér hjá því að svara spurningum þingmanna Demókrataflokksins um persónulegar skoðanir sínar varðandi fóstureyðingar, byssur og önnur umdeild málefni. Þess í stað sagðist hann nálgast alla úrskurði sína með opnum huga.Gorsuch sagðist skilja persónulegar skoðanir sínar eftir heima. Á meðan á kosningabaráttunni stóð í fyrra, sagði Trump að hann myndi tilnefna dómara sem myndi snúa væri tilbúinn til þess að snúa við úrskurðinum Roe v. Wade frá 1973. Sá úrskurður Hæstaréttar tryggði rétt kvenna til fóstureyðinga samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna. Repúblikanar styðja tilnefningu Gorsuch heilshugar en demókratar gera það ekki. Charles E. Schumer, leiðtogi minnihlutans á öldungadeild þingsins, velti upp þeim möguleika í dag hvort að eðlilegt væri að staðfesta mann í embætti til lífstíðar, sem var tilnefndur af forseta sem er til rannsóknar af Alríkislögreglu Bandaríkjanna. „Mig langar að benda á kaldhæðnina í því að repúblikanar, sem héldu dómarasætinu auðu í tæpt ár á meðan Barack Obama var forseti, eru nú að drífa sig að fylla sætið fyrir forseta sem er til rannsóknar hjá FBI.“
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastala tók á loft Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira