Borginni heimilt að miðla persónuupplýsingum í eineltismáli Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. apríl 2017 10:44 Ráðhús Reykjavíkur. Vísir/GVA
Reykjavíkurborg var heimilt að miðla persónuupplýsingum um starfsmann sem kvartað hafði undir einelti til sálfræðistofu sem var ráðgjafi vegna eineltismálsins.Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar en starfsmaðurinn kvartaði til stofnunarinnar vegna miðlun Reykjavíkurborgar á persónuupplýsingum um hann, sem og vinnslu sálfræðistofunnar á þeim. Starfsmaðurinn hafði ítrekað farið fram á við Reykjavíkurborg að mál hans yrði skoðað þar sem hann hafi ekki talið rétt hafa verið staðið að málum við meðferð kvartana hans yfir meintu áreiti á vinnustað. Kvartaði hann meðal annars yfir því að fulltrúar borgarinnar hafi ekki gætt hlutleysis. Borgin hafi því ákveðið að fá utanaðkomandi ráðgjafa vegna málsins. Ekki var þó leitað samþykkis starfsmannsins en borgin taldi þó að hann væri meðvitaður um þessa afgreiðslu borgarinnar. Braut lög varðandi fræðslu til starfsmannsinsSendi borgin sálfræðistofunni tölvupóstsamskipti starfsmannsins við starfsmannastjóra Reykjavíkurborgar, greinargerð lögfræðings starfsmannsins, auk greinargerðar starfsmannsins og tímalínu vegna málsins. Kvartaði starfsmaðurinn yfir því að sálfræðistofunni hafi verið send gögnin en í þeim mætti meðal annars finna persónuleg greinargerð hans um eineltið, en hún hafi meðal annars innihaldið bréf frá sálfræðingi hans. Var það mat Persónuverndar að þar sem starfsmaðurinn hafði lagt inn formlega kvörtun til borgarinnar vegna eineltis hafi Reykjavíkurborg verið heimilt samkvæmt lögum að miðla persónuupplýsingum um hann til sálfræðistofunnar, sem og vinnsla sálfræðistofunnar. Það er þó mat Persónuverndar að Reykjavíkurborg hafi ekki sinnt fræðsluskyldu sinni með því að veita starfsmanninum ekki fræðslu áður en persónuupplýsingunum var miðlað áfram. Þarf Reykjavíkurborg því að gera Persónuvernd grein fyrir því hvernig borgin muni uppfylla fræðsluskyldu sína þegar persónuupplýsingum er miðlað í þeim tilgangi að afla utanaðkomandi ráðgjafar í framtíðinni.Úrskurð Persónuverndar má lesa hér.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira