Guðjón Valur Sigurðsson: Gríðarlegur styrkur að klára þetta Dagur Sveinn Dagbjartsson skrifar 7. maí 2017 22:00 Strákarnir þjöppuðu sér saman í kvöld. vísir/eyþór
Það þarf ekkert að fjölyrða um mikilvægi leiksins upp á framhaldið að gera en tap í Laugardalshöllinni í kvöld hefði sett íslenska liðið í afar slæma stöðu. "Við horfðum klárlega á þetta sem úrslitaleik. Það sást kannski, var smá taugatitringur. En frábært hvernig við höndluðum pressuna og að sigla þessu heim var gríðarlega mikilvægt," sagði fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson. Ísland var með fjögurra marka forystu þegar skammt var til leiksloka en þegar flautað var til leiksloka var munurinn aðeins eitt mark. "Það fór ekkert of mikið um mig. Þetta leit vel út þegar tíu mínútur voru eftir. Við vorum fjórum mörkum yfir og áttum séns á að komast fimm mörkum yfir. En við vorum fljótir að missa þetta niður í tvö. Og því segi ég að styrkurinn var gríðarlegur að ná að klára þetta," sagði Guðjón Valur. "Við vildum spila almennt betur en í Makedóníu. Vörnin gekk miklu betur. Ekki framan af en við leystum það. Bjarki [Már Gunnarsson] steig stórkostlega upp í seinni hálfleik og braut þeirra sóknir niður hvað eftir annað. Og allir strákarnir í heild sinni. Við gerðum það betur. Ólafur [Guðmundsson] ætlaði heldur betur að sýna sig og sanna og gerði það, heldur betur. Rúnar [Kárason] skoraði líka nokkur mikilvæg mörk. Og það þarf ekkert að fjölyrða um hversu góður Aron er. Mér fannst allir leggja mikið til liðsins í dag," sagði Guðjón Valur að lokum.
EM 2018 í handbolta Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira