Rústir al-Nuri moskunnar á valdi írakskra hersveita Samúel Karl Ólason skrifar 29. júní 2017 11:23 Sérsveitarmenn að störfum í Mosul. Vísir/AFP
Stjórnarher Íraks hefur náð tökum á rústum al-Nuri moskunnar í Mosul. Abu Bakr al-Baghdadi lýsti yfir stofnun kalífadæmis Íslamska ríkisins þar árið 2014, en vígamenn moskunnar sprengdu hana í loft upp fyrr í mánuðinum, í stað þess að missa hana í hendur hersins. Um mikinn táknrænan sigur er að ræða. Sérsveitarmenn réðust til atlögu gegn vígamönnunum við sólarupprás. Íslamska ríkið stjórnar enn litlu svæði við moskuna í elsta hluta Mosul. Yfirvöld í Írak búast við því að orrustunni um borgina verði lokið á næstu dögum. AP fréttaveitan segir ISIS-liða stjórna um tveimur ferkílómetrum í borginni. Mosul hefur verið helsta vígi ISIS frá því samtökin hertóku borgina sumarið 2014. Samtökin hafa tapað stærstum hluta yfirráðasvæðis síns í Írak og eru á undanhaldi víða í Sýrlandi. Bandalag sýrlenskra Kúrda og Araba herjar á ISIS í Raqqa í Sýrlandi, með miklum árangri. Orrustan um Mosul hefur staðið yfir í marga mánuði og hafa fregnir borist af töluverðu mannfalli meðal almennra borgara. Þá þykir ljóst að vígamenn ISIS hafa skýlt sér á bak við borgara til að forðast loftárásir. Þá hafa vígamennirnir komið gildrum og sprengjum fyrir víða, sem hefur gert sóknina gegn þeim erfiða.
Mið-Austurlönd Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Sjá meira