Þremenningar dæmdir skaðabótaskyldir í Marple-málinu Kjartan Kjartansson skrifar 4. júlí 2017 17:52 Þeir Hreiðar Már (t.v.), Magnús (f.m.) og Skúli (t.h.) eru skaðabótaskyldir vegna tjóns Kaupþings af Marple-fléttunni. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfu þrotabús Kaupþings um að Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri bankans, Magnús Guðmundsson, forstjóri bankans í Lúxemborg, og Skúli Þorvaldsson, fjárfestir, séu skaðabótaskyldir í Marple-málinu svonefnda. Þrotabúið hafði krafið þá um milljarða króna skaðabætur. Málið snerist um færslu á fjármunum Kaupþings til félagsins Marple Holding sem Skúli átti í Lúxemborg og kaup bankans á eigin skuldabréfum af Marple. Fangelsisdómur Hreiðars Más var þyngdur í tólf mánuði í dag og Skúli hlaut sex mánaða dóm. Þetta var í annað skiptið sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu en Hæstiréttur vísaði málinu aftur í hérað vegna vanhæfis meðdómara. Hreiðar Már var dæmdur fyrir fjárdrátt og umboðssvik sem héraðsdómur taldi hafa leitt til stórfellds fjártjóns almenningshlutafélagsins Kaupþings. Brot Skúla var talið felast í að taka við og geyma ólögmætan hagnað á reikningi félagsins Marple Holding. Magnús hlaut átján mánaða dóm fyrir sinn hlut í brotunum.Sjá einnig: Marple-málið: Dómur yfir Hreiðari Má þyngdurÞrotabú Kaupþings krafðist þess að sakborningarnir fjórir í málinu, þeir Hreiðar Már, Skúli og Magnús auk Guðnýjar Örnu Sveinsdóttur, fyrrverandi fjármálastjóra bankans, yrðu dæmd til að greiða skaðabætur. Guðný var sýknuð í málinu. Krafðist fallni bankinn þess að fjórmenningarnir greiddu rúma sex milljarða króna, 15,6 milljónir evra og 3,5 milljónir dollara auk vaxta og dráttarvaxta í skaðabætur. Héraðsdómur féllst hins vegar aðeins á þrautavarakröfur Kaupþings hf. um að viðurkenna skaðabótaskyldu Hreiðars Más, Magnúsar og Skúla gagnvart bankanum. Þá féllst héraðsdómur á upptöku á rúmlega 6,7 milljörðum króna sem voru á reikingi Marple sem hald var lagt á við rannsókn málsins. Hann hafnaði hins vegar kröfu um að gera eignir Skúla í Lúxemborg upptækar.
Tengdar fréttir Lektor við Háskóla Íslands vanhæfur til að dæma í Marple-málinu Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í október 2015 í Marple-málinu svokallaða var í dag ómerktur í Hæstarétti vegna vanhæfis sérhæfðs meðdómara í málinu, Ásgeirs Brynjars Torfasonar en hann er lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. 23. febrúar 2017 15:00 Marple-málið: „Þungt að horfa upp á það að umbjóðandi minn hafi ekki notið réttlátrar málsmeðferðar“ Kristín Edwald, verjandi Magnúsar Guðmundssonar sem er einn af sakborningum í Marple-málinu, fagnar niðurstöðu Hæstaréttar frá því í dag en rétturinn ómerkti þá dóm Héraðsdóms Reykjavíkur vegna vanhæfis sérfróðs meðdómanda í málinu, Ásgeirs Brynjar Torfasonar, en hann er lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. 23. febrúar 2017 16:27 Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira
Lektor við Háskóla Íslands vanhæfur til að dæma í Marple-málinu Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í október 2015 í Marple-málinu svokallaða var í dag ómerktur í Hæstarétti vegna vanhæfis sérhæfðs meðdómara í málinu, Ásgeirs Brynjars Torfasonar en hann er lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. 23. febrúar 2017 15:00
Marple-málið: „Þungt að horfa upp á það að umbjóðandi minn hafi ekki notið réttlátrar málsmeðferðar“ Kristín Edwald, verjandi Magnúsar Guðmundssonar sem er einn af sakborningum í Marple-málinu, fagnar niðurstöðu Hæstaréttar frá því í dag en rétturinn ómerkti þá dóm Héraðsdóms Reykjavíkur vegna vanhæfis sérfróðs meðdómanda í málinu, Ásgeirs Brynjar Torfasonar, en hann er lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. 23. febrúar 2017 16:27