Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. maí 2026 16:01 Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Bláa lónið Í dag voru sérleyfis- og lóðaleigusamningar á milli íslenska ríkisins og Bláa Lónsins hf. um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu í Þjórsárdal undirritaðir. Samningarnir eru fyrsta skrefið í uppbyggingu gestastofu í mynni Þjórsárdals þar sem fjölbreytt þjónusta verður í boði fyrir ferðamenn en dalurinn er sagður eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að samningurinn sé hluti af metnaðarfullri uppbyggingu sem Bláa Lónið hf. standi að baki í Þjórsárdal. Verkefnið í heild sinni sé stærsta fjárfestingin í íslenskri ferðaþjónustu um þessar mundir. Auk starfseminnar í gestastofunni vinni félagið að uppbyggingu hágæðahótels í Rauðukömbum, Mountain Retreat, og Fjallabaðanna. Framkvæmdir séu í fullum gangi og stefnt sé að því að opna fyrsta hluta starfseminnar sumarið 2027 og að öll starfsemin verði komin í rekstur vorið 2028. „Íslensk ferðaþjónusta er í hópi mikilvægustu útflutningsgreina landsins og skapar tekjur og störf víða um landið. Öflug ferðaþjónusta stuðlar auk þess að fjölbreyttu mannlífi, afþreyingu og þjónustu sem allir geta notið. Það er þess vegna alltaf ánægjulegt þegar einkafjárfestar ráðast í miklar fjárfestingar sem gera Ísland enn áhugaverðara og fjölbreyttara í augum ferðamanna. Uppbyggingin í Þjórsárdal er metnaðarfullt og gott dæmi um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda í víðum skilningi á þessu merkilega náttúru og sögusvæði,“ er haft eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Teiknuð yfirlitsmynd af gestastofunni.Bláa lónið „Ísland býr yfir mikilli sérstöðu og tækifærin fram á veginn liggja í upplifunar- og vellíðunarferðamennsku, við eigum fullt erindi á heimssviðið um þessar mundir. Hjá Bláa Lóninu starfar einstakur hópur starfsfólks við hönnun, vísindi og upplifun og þetta uppbyggingarverkefni er gott dæmi um þá hæfni, þá langtímasýn og það hugrekki sem einkennt hefur Bláa Lónið frá stofnun þess. Gestastofan og Fjallaböðin í Þjórsárdal munu til lengri tíma verða einn áhugaverðasti áfangastaðurinn í ferðaþjónustu á Íslandi,“ er haft eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa Lónsins. Svona munu Fjallalónið og Mountain Retreat líta út.Bláa lónið
Bláa lónið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ferðaþjónusta Skeiða- og Gnúpverjahreppur Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira