Loksins ein sem segist ánægð með Costco-myndina sína Jakob Bjarnar skrifar 13. júlí 2017 14:18 Myndatökurnar í Costco eru alræmdar en Erla lætur sér hvergi bregða.
Erla Hlynsdóttir fyrrverandi blaðamaður og nú framkvæmdastjóri Pírata, er ánægð með passamyndina af sér á Costco-kortinu. Ef marka má orð hennar á Facebook. Þetta sætir nokkrum tíðindum því flestir fórna höndum þegar þeir sjá sína Costco-mynd. „Góð mynd af mér,“ tilkynnir Erla vinum sínum á Facebook, að því er virðist harla ánægð með nýja kortið sitt og myndina. Eða, til þess að gera. Erla er ein af fáum sem gefa sig út fyrir að vera ánægð með Costco-myndatökuna sem svo margir hafa farið í til að gera hin mikilvægu Costco-kort sín gild. Á Facebooksíðu hennar segir vinkona Erlu: „Haha myndin mín er líka hræðileg. Alls konar undirhökur sem ég vissi ekki af því myndavélin er í eins meters hæð og tekur myndina þá upp á við. Ég þorði ekki að setja hana á Fb en deildi henni á snapchat.“ En, Erla lætur sér hins vegar hvergi bregða og lýsir því hvernig hún aðlagaðist hinum nýja lífsstíl sem aðild að Costco-fjölskyldunni felur í sér, eins og að drekka vatn. „Var á fullu að spjalla við mann sem var líka að koma í fyrsta skipti á meðan við biðum eftir meðlimakortunum, sýndum hvort öðru staðfestingarpóstinn sem við fengum frá Costco og svona bara eins og maður gerir. Svo rákumst við hvort á annað í snakkdeildinni og heilsuðumst eins og gamlir vinir,“ segir Erla og með fylgir hið merkingarþrungna myllumerki: „#costco“.
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira