Skátar valda minna álagi á Strætó en talið var Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. júlí 2017 06:00 Um 5.000 skátar mættu á mótið. VÍSIR/VILHELM
Strætó hefur einna helst þurft að bregðast við auknu álagi vegna heimsmóts skáta hér á landi á leið 57, sem fer upp að Esju. Óttast var að mótið myndi sprengja almenningssamgöngukerfi borgarinnar en það hefur ekki gerst. Þetta segir Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó. „Það er ekki búið að vera mikið álag á gulu vögnunum á höfuðborgarsvæðinu eins og er,“ segir Guðmundur Heiðar. Upplýsingafulltrúinn segist ekki hafa heyrt um að hamfaraálag sé á strætókerfinu líkt og spáð var. „Ég tékkaði ekki á því í dag [í gær] en ég hefði heyrt af því ef það hefði verið eitthvað. Okkur finnst þetta hafa gengið mjög vel.“ Strætó vinnur með skátunum að því að dreifa álaginu. Segir Guðmundur Heiðar að skátarnir passi að dreifa sér ágætlega og að þeir muni láta vita ef það er von á miklu álagi. „Hingað til höfum við bara þurft að bregðast við á leið 57. Annars er þetta nokkuð gott allt saman.“ Til að bregðast við mögulegu álagi eru bílstjórar Strætó á bakvakt tilbúnir að stökkva inn í með aukavagn á tilteknar leiðir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira