Valitor varar við svikatölvupóstum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. júlí 2017 14:42 Í tilkynningu frá Valitor segir að fólk sé eindregið varað við tölvupóstunum þar sem þetta er mjög þekkt aðferð við að blekkja fólk. vísir/stefán
Kortafyrirtækið Valitor varar korthafa við tilraunum óprúttinna aðila til kortasvika með því að senda korthöfum tölvupóst. Korthafarnir eru beðnir um að opna hlekk í tölvupóstinum og gefa upp allar kortaupplýsingar auk Verified by Visa- númers sem korthafar fá sent með sms-skilaboðum í síma. Í tilkynningu frá Valitor segir að fólk sé eindregið varað við svona tölvupóstum þar sem þetta er mjög þekkt aðferð við að blekkja fólk. „Tölvupóstar sem um ræðir núna eru sendir út með vörumerkjum þekktra fyrirtækja, jafnt innlendum sem erlendum, og því fyllsta ástæða til að vera á varðbergi. Oft er verið að tilkynna í þessum póstum um að korthafar eigi von á endurgreiðslum eða um einhverskonar þjónusturöskun sem kallar á umsvifalausa aðgerð. Af þessum sökum viljum við biðja korthafa að hafa eftirfarandi í huga: • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp Verified by VISA öryggisnúmer sem sent er í GSM síma þegar boð um endurgreiðslu berast. Enda er ekki þörf á því númeri þegar gerð er endurgreiðsla heldur á þetta númer aðeins við þegar korthafar eru sjálfir að versla á netinu. • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp þriggja stafa öryggisnúmer sem er aftan á kortunum þegar um endurgreiðslur er að ræða. Korthafar sem fá boð um inneign hjá söluaðila ættu í öllum tilfellum að hafa samband við viðkomandi aðila til þess að fá upplýsingar um inneign og passa að gefa engar upplýsingar upp fyrr en staðfesting liggur fyrir. • Varast pósta á lélegri íslensku. Erlend fyrirtæki senda venjulega allt á ensku. • Ekki opna hlekki í tölvupóstum sem þú kannast ekki við. • Korthafar sem gefa upp allar öryggisupplýsingar í tengslum við kortið til rangra aðila geta átt á hættu að bera sjálfir hugsanlegt tjón,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira